Föstudagur, 15. mars 2013
Takk fyrir, Björgvin G.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hrunsins segir Samfylkinguna enn staðráðna í ESB-ferlinu. Rökin eru núna sótt til Samtaka iðnaðarins, en þar segir nýkjörinn formaður:
Þá fjallaði Svana um aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið. Hún sagði skiljanlegt að margir væru efins um að aðild væri rétta skrefið, atvinnuleysi væri mikið og viðvarandi í flestum evrulöndum, Evrópa yrði væntanlega svæði hægs vaxtar næstu áratugi miðað við til dæmis Asíu og Norður-Ameríku og rekstur evrunnar kallaði á miklar breytingar, svo sem að reka björgunarsjóði og bræða saman ríkisfjármál evrulandanna.
Atvinnuleysi, hægur vöxtur og pólitískt uppnám er sem sagt stefnumál Samfylkingar.
Takk fyrir hreinskilnina, Björgvin G.
![]() |
ESB eitt brýnasta kosningamálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.