Miðvikudagur, 27. febrúar 2013
Reykjavík 101 stjórnar VG
ESB-sinnar eru hlutfallslega flestir í Reykjavík. Sérfræðingar af ýmsu tagi í vinnu hjá ríkinu eru hrifnir af ESB-aðild enda bætir aðildin atvinnumöguleika þeirra. Þetta fólk velur sér oft búsetu í hverfi 101 til að vera nærri kjötkötlunum.
Um 72 prósent kjósenda á landsbyggðinni er á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu, samkvæmt skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Heimssýn á liðnu hausti.
Það er augljóst hverjir ráða ferðinni í VG.
Landsbyggðarfólk farið af fundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sennlega rétt hjá þér enda frumstæður afturhaldshugsanaháttur mjög algengur á landsbyggðinni og skiptir þá litlu máli hvað í flokki menn eru. Á landsbyggðinni bljómstrar rasismi og hræðsla við útlendinga. Þar vill fólk ekkert fá að sunnan nema peningana, aðkomumenn eru fyrirfram stimplaður glæpalýður.
Óskar, 27.2.2013 kl. 08:29
Óskar , "hvaða peninga fær landsbyggðin að sunnan"?. Þú hefur greinilega ekki séð skýrslu Háskólans á Akureyri um hvaðan tekjur ríkisins koma og hvert þær fara.
Aðalsteinn Ingi Jónsson, 27.2.2013 kl. 09:13
Já það væri gott að fá svar og sönnun fyrir því. Ég býð spennt eftir að heyra.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2013 kl. 11:25
Þetta 101-tal er ákaflega barnalegt og lítt upplýsandi.
H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 27.2.2013 kl. 18:57
Nú hefur komið í ljós að þessi fullyrðing Rangars er ekkert annað en óráðshjal tapsárs manns.
Um var að ræða tvær atkvæðagreiðslur sem fóru fram kl. 13:30 og 14:30 á fundi sem stóð til kl. 17:00. Það voru jafn margir sem greiddu atkvæði í þessum atkvæðagreiðslum eins og atkvæðagreiðslum fyrr um daginn.
En eins og Árni Þór sagði þá er sannleikurinn ekki að þvælast fyrir Morgunblaðinu þegar annað hentar pólitískri sýn rítstjórans.
Sigurður M Grétarsson, 28.2.2013 kl. 08:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.