Þriðjudagur, 26. febrúar 2013
Framsókn stærri en VG og Samfó til samans
Framsóknarflokkurinn mælist með 23,8% fylgi og er stærri en samanlagt Samfylkingin (12,8%) og Vinstri græn (9,5%) en ríkisstjórnarflokkarnir fá samanlagt 22,3 prósent í könnun MMR.
Framsóknarflokkurinn uppsker fyrir einarða andstöðu við aðild Íslands að Evrópusambandinu og vegna Icesave-málsins, þar sem flokkurinn stóð heill með óbilgjörnum kröfum Breta og Hollendinga.
Ríkisstjórnarflokkarnir geta gleymt því að þvinga fram stærri málum á alþingi síðustu dagana fyrir kosningar.
Framsókn bætir enn við sig fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er allt hárrétt sem þú segir hér, Páll. Úrtöluraddir hljóta að verða hugsandi yfir þessu.
Kristinn Snævar Jónsson, 26.2.2013 kl. 17:58
Sérhagsmunaklíkan með 28 %
Hvað var hún aftur með áður ?
hilmar jónsson, 26.2.2013 kl. 19:28
Stóð Framsóknarflokkurinn ekki heill GEGN Icesave???
Guðmundur Ásgeirsson, 26.2.2013 kl. 21:54
Ekki heill nei.
Það voru ekki allir í XB sem sögðu NEI
Sleggjan og Hvellurinn, 26.2.2013 kl. 23:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.