Föstudagur, 25. janúar 2013
Strandríkjahagsmunir Íslands færu til ESB
Evrópusambandið yfirtæki fiskveiðilögsögu Íslands ef til þess kæmi að við yrðum aðilar að sambandinu. Það stendur skýrum stöfum í Lissabon-sáttmálanum að fiskveiðilögsaga aðildarríkja fellur undir sameiginlegt ákvörðunarvald ESB.
Núna staðfestir Lucinda Creighton Evrópuráðherra Írlands þann skilning.
Til að fá undanþágu frá sjávarútvegsstefnu ESB þyrfti Ísland að krefjast breytinga á Lissabon-sáttmálanum. Sú krafa kæmi fram í samningsafstöðu ríkisstjórnar Íslands í sjávarútvegsmálum. En þar hefur ríkisstjórn Jóhönnu skilað auðu.
Verði undir sameiginlegu stefnunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
En við fáum ódýra kjúklinga?
Pakkakíkir (IP-tala skráð) 25.1.2013 kl. 08:42
Við fáum nú nokkra sílissporða. Eftir að þeir fá fiskveiðilögsöguna okkar og við borgum þeim ICESAVE.
Elle_, 25.1.2013 kl. 21:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.