Föstudagur, 29. júní 2012
Evran sigar Þjóðverja, eða þannig
Leiðtogafundur Evrópusambandsríkjanna knúði Þjóðverja til undanhalds í vörninn fyrir heilbrigðum ríkisfjármálum. Undir morgun, kortér í fimm, tilkynntu hróðurgir forsætisráðherrar Spánar og Ítalíu að gullkista seðlabanka Evrópu yrði opnuð þeim til bjargar.
Þjóðverjar líta á undanhaldið sem ósigur Angelu Merkel kanslara. Þýska stjórnin mun vísa til þess ákvæðis í samkomulaginu að seðlabankinn fái aukið eftirlitshlutverk með bankastarfsemi á evru-svæðinu.
Næturflótti Þjóðverja verður ekki lokaorrustan um evruna, svo mikið er víst.
Hækkun á mörkuðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.