Fimmtudagur, 5. apríl 2012
ESB beitir þöggun á ,,ranga'' umræðu
Sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, Timo Summa, ferðast um landið með Evrópustofu, sem fjármögnuð er af ESB, til að kynna kosti Evrópusambandsaðildar. Tómas Ingi Olrich, fyrrum sendiherra og menntamálaráðherra, gagnrýnir Summa á málefnalegan hátt og með tilvísun í alþjóðasáttmála.
Summa hyggst ekki ræða gagnrýni Tómasar Inga og láta eins og ekkert hafi í skorist.
Opinberlega hefur Summa sagt hlutverk sitt að stuðla að umræðu. Nú er orðið ljóst hvað Evrópusambandið á við með umræðu: fagurgali um ESB er umræða en gagnrýnin skoðanaskipti eru ekki umræða.
Summa svarar ekki gagnrýni Tómasar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Summa Hr. Summa er regnbogasilungur, flatbökur og eldishænur.
Sumarliði (IP-tala skráð) 5.4.2012 kl. 10:31
Svona álíka eins og þegar glæpamaður vill ekki tjá sig um glæp sinn.
Erfitt að rökræða slík mál.
Eru ESB sinnar ekki bara landráðafólk og glæponar? Svei mér þá.
jonasgeir (IP-tala skráð) 5.4.2012 kl. 11:09
,,Og ég hefði haldið það ,sei sei já.
Helga Kristjánsdóttir, 5.4.2012 kl. 12:28
Mér þætti ekki óeðlilegt að vísa þessum Summa úr landi, slíta síðan "stjórnmálasambandi" við ESB og finna einhver ráð til að loka Evrópustofu. Vonandi fær þjóðin ríkisstjórn, sem treystir sér til þess strax á fyrsta degi..
Sigurður (IP-tala skráð) 5.4.2012 kl. 13:00
Nákvæmlega, Sigurður. Loka íhlutunarstofunni, sem aldrei átti að opna, og reka hann úr landi.
Elle_, 5.4.2012 kl. 20:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.