Mánudagur, 5. mars 2012
Samfylkingarréttarhöld
Svart-hvít heimsmynd samfylkingareinfeldninga er staðfest með pólitískum réttarhöldum yfir Geir H. Haarde. Samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar stóð hrunvaktina og oddvitar þessara flokka báru ábyrgð á ríkisstjórninni ásamt fagráðherrum.
Á alþingi hannaði Samfylkingin atkvæðagreiðslu sína þannig að Geir H. Haarde situr einn á ákærubekk. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Björgvin G. Sigurðsson og Össur Skarphéðinsson sem öll báru sinn hluta ábyrgðar á forystu Samfylkingar og fagráðuneytum eru stikkfrí.
Hikstandi og höktandi fréttaflutningur af réttarhöldunum er í samræmi við hvernig til þeirra var stofnað. Réttarhaldið er fyrir hálfluktum dyrum og í ætt við undangengið baktjaldamakkið.
Samfylkingareinfeldningarnir tína upp mola hér og þar til að hneykslast á í þeirri von að reiðibylgja rísi í þjóðfélaginu sem muni skola á land kosningasigri Samfylkingar í næstu þingkosningum. En því miður: hallærislegu og hálfluktu sýndarréttarhöldum Samfylkingar verður þeim einum til hneisu sem stofuðu til þeirra.
Efnahagsmál oft rædd í stjórninni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvað ætlarðu að hökta lengi á þessari blæbrigðalausu meðvirkni klisju Páll ?
Skelltu þér frekar í einhverja útflúraða samsæriskenningu.
Þar ertu á heimavelli.
hilmar jónsson, 5.3.2012 kl. 20:27
Þú ert farinn að lesa einfeldningana Páll,sem vilja kalla sig ráðamenn,tvíbent no.,menn sem leggja á ráðin,því miður af undirferli og illgirni.
Helga Kristjánsdóttir, 5.3.2012 kl. 20:54
Hilmar,,,þetta er kallað að kasta steinum úr glerhúsi eða margur heldur mig sig,,take your pick
casado (IP-tala skráð) 5.3.2012 kl. 20:56
Páll Vilhjálmsson kemur ekkert á óvart !
Hann skrifar það sem honum er borgað fyrir, og sama hver það er sem borgar ! Eru það merkilegir einstaklingar ?
JR (IP-tala skráð) 5.3.2012 kl. 21:17
Sæll Páll, Áttirðu ekki við "Samspillingarréttarhöld"
Kristján Þorgeir Magnússon (IP-tala skráð) 5.3.2012 kl. 21:25
Þetta er rétt hjá Páli, Landráðafylkingin ber líka ábyrgð á þessu hruni og eiga að vera þar líka sem Geir er. Auk þess vil ég bæta við Össuri.
Þessi Landráðafylkingin stjórn í dag alveg eins og í hruninu: Veit ekkert, skilur ekkert og kanna ekkert
Ómar Gíslason, 6.3.2012 kl. 06:29
JR. Opnaðu eigið blogg. Ég er orðinn hundleiður á að lesa kommentin frá þér sem eru aldrei málefnaleg og í takt við umræðuna.
blaðamaður (IP-tala skráð) 6.3.2012 kl. 16:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.