Miðvikudagur, 30. nóvember 2011
Depurð í ESB, bjartsýni á Íslandi
Evruland er í helgreipum stjórnmálaelítu sem hvorki kann að stjórna né að leiða fram lýðræðislegan vilja þjóðríkjanna 17 sem eiga samstarf um evruna. Reynslan í Grikklandi og Ítalínu sýndi að endastöð evru-samstarfsins var náð, tíu árum eftir að mishepnnaði gjaldmiðillinn var kynntur til sögunnar.
Í stað þess að kannast við mistökin og lágmarka skaðann forhertist Brusselvaldið og setti tvo tæknikrata úr stóði embættismanna með ESB-reynslu yfir fullvalda þjóðríki Ítalíu og Grikklands.
Tæknikratar kaupa tíma í mesta lagi. Skriftin er á veggnum og allir nema ólæsir kunna að ráða í hana. Þess vegna ríkir svartsýni í evrulandi þar sem hvorttveggja er ónýtt efnahagskrefið og stjórnmálakerfið. Hér á Íslandi er hörmungin takmörkuð við stjórnmálakerfið og við stöndum (enn) utan Evrópusambandsins. Af því leiðir erum við bjartsýn.
Svartsýnir Evrópubúar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Tad er afar skritid ad sja hina ymsu adila hlakka yfir ad evran a i erfidleikum,eg hreinlega neita ad trua tvi ad mikill hluti Islendinga geri ser ekki grein fyrir ad tad hefur natturulega geisilegar afleidingar her a landi ef evropusambandid molast sundur,er ekki milli 60 og 80% af okkar utflutningi til Evropubandalagsins,hvert ætli bjartsinin færi ta hja Landanum
Þorsteinn J Þorsteinsson, 30.11.2011 kl. 15:57
Skipting gjaldmiðla útflutningstekna Íslands er þessi.:
37% Bandaríkjadollarar
27% Evrur
14% Pund
7% Danskar krónur
6% Norskar krónur
4% Sænskar krónur
5% Aðrar myntir
100% Samtals
.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 30.11.2011 kl. 17:54
Þorsteinn, það hlakkar ekki í neinum. Hins vegar eru sumir nægjanlega vitrir að átta sig á að það er rugl að reyna að blása lífi í eitthvað sem er orðið að múmíu.
Björn (IP-tala skráð) 1.12.2011 kl. 00:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.