Föstudagur, 28. október 2011
Össur skarpi
Síkáti utanríkisráðherrann okkar sagði í viðtali við Útvarpið í kvöld að hann væri ósammála Paul Krugmann Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði um framtíð evrunnar sem gjaldmiðils.
Össur er á rekord rannsóknarnefndar alþingis um að hann hafi ekki hundsvit á efnahagsmálum.
Össur er með lítið vit á ýmsu öðru - til dæmis sjálfum sér.
Athugasemdir
Það virðist sem Össur trúi því að evran sé ekki gjaldmiðill heldur einskonar efnahagslegt töfrateppi sem lífskjör almennings geti svifið á í lausu lofti þótt hagkerfið hrynji undan þeim.
Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 28.10.2011 kl. 18:52
Það er orðið mikið meira en sorglegt að fylgjast með þessum manni sem eiðsvarinn fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis fullyrti að hann hefðu ekki hundsvit á fjármálum og hefði ekki neinn áhuga þeim. Með því bar hann enga ábyrgð á hruninu sem ráðherra og sá sem tók hlutverk banka og viðskiptaráðherranns. í dag þykist þetta furðufyrirbæri vita betur en Nóbelshafi í hagfræði sem jafnframt er sennilega sá allra virtasti í veröldinni í þeim fræðum.
.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 28.10.2011 kl. 19:23
Og Martin Wolf, aðalhagfræðingur Financial Times,
sagði í gær á fjármálafundinum: Ég óska ykkur góðs og hugsið ykkur afar vel um áður en þið takið upp evruna. - - - Ef þið farið á evrusvæðið eruð þið að ganga í Þýskaland.
Elle_, 28.10.2011 kl. 20:49
Evru-daður á Íslandi vekur furðu erlendra hagfræðinga
Elle_, 28.10.2011 kl. 20:51
Brekkan Össur veit þetta allt miklu betur en Paul Krugmann að sjálfsögðu.
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 28.10.2011 kl. 22:40
Iss Nobelsverðlaunahafi, Össur er Bonelsveðrlaunahafi.
Helga Kristjánsdóttir, 29.10.2011 kl. 00:33
Mér skilst af öllu að karlkvölin, hann Össur, stigi nú ekki í vitið ótilneyddur.
kallpungur, 29.10.2011 kl. 02:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.