Þriðjudagur, 9. ágúst 2011
Lánstraust Þýskalands fellur
Kreppa evru-ríkjanna dregur úr tiltrúnni greiðslugetu Þýskalands. Bretland nýtur meira lánstraust en Þýskaland, miðað við skuldatryggingaálag. Jeremy Warner á Telegraph segir tímamótin söguleg þar sem Þýskaland ber ekki lengur ægishjálm yfir önnur ríki fyrir fjármálastyrk.
Óreiðuríkin í Suður-Evrópu draga þýska efnahagsveldið niður í sameiginlega skuldafjötra Evrulands.
Þýsk stjórnvöld hafa ekki borið það undir þarlendan almenning hvort rétt sé að borga skuldir Spánar, Ítalíu, Portúgals og Grikklands með þýsku skattfé.
Í næstu kosningum mun þýska þjóðin segja álit sitt á skuldayfirtökunni. Það verður stutt og laggott.
Nein.
Athugasemdir
Hvaða flokk eiga þá Þjóðverjar að kjósa?
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 9.8.2011 kl. 17:44
Þú orðar þetta ágætlega Páll:"Óreiðuríkin í Suður-Evrópu". Það er nefnilega engin nýjung að þessi ríki eru óreiðuríki - hafa verið það um langan aldur - og skiptir engu hvort er á sviði efnahagsmála eða stjórnmála.
Það kemur æ betur í ljós. Brussel vildi ekki gera sér grein fyrir landlægri spillingu í þessum ríkjum og taldi sig vera að bjarga þeim undan herforingjastjórnum og "hægri öfgamönnum" með því að bjóða þeim í klúbbinn.
Gústaf Níelsson, 9.8.2011 kl. 21:36
Það er nú verið að taka á þessu, Gústaf. Nú verða fleiri ákvarðanir teknar sameiginlega í Brussel. Það boðar aðeins gott.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 9.8.2011 kl. 22:13
Já, sælir eru einfaldir Stefán minn, svo ekki sé nú meira sagt.
Gústaf Níelsson, 10.8.2011 kl. 17:56
Gústaf: Hvernig er það að vera einfaldur, eða áttirðu við mig og hefur engin rök og grípur til þess að kalla menn einfalda?
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 10.8.2011 kl. 22:45
Stefán, þú hefur svarað spurningunni sjálfur - óaðfinnanlega.
Gústaf Níelsson, 10.8.2011 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.