Mánudagur, 18. júlí 2011
Viðskiptaáætlun Jóns Ásgeirs: fyrst fjölmiðlar, þá pólitík og loks peningar
Jón Ásgeir Jóhannesson fyrrum Baugsstjóri heldur enn fjölmiðlaveldi sínu; Stöð 2, Bylgjunni og Fréttablaðinu. Nýverið tók hann yfir tímaritaútgáfu Hreins Loftssonar viðskiptafélaga síns. Þá eru þreifingar um að hann eignist DV.
Á tíma útrásar lærði Jón Ásgeir að nýta fjölmiðla sér til framdráttar. Dagskrárvald fjölmiðla er gulls ígildi í samskiptum við stjórnmálamenn sem þurfa fjölmiðla til að tryggja sér endurkjör.
Með því að vera stærsti eigandi fjölmiðla á Íslandi á Jón Ásgeir greiðan aðgang að stjórnmálamönnum. Á vettvangi stjórnmálanna eru teknar ákvarðanir sem Jón Ásgeir og aðrir viðlíka kunna að breyta í peninga.
Þjóðin þarf stjórnmálamenn sem geta komið í veg fyrir endurreisn Jóns Ásgeirs og auðmannanna.
Athugasemdir
Stephan G skrifaði einu sinni:
Vertu aldrei vinnumaður varmennskunnar,
þó hún bjóði gull og goðorð.
Helgi (IP-tala skráð) 18.7.2011 kl. 18:36
Groundhog day ....
.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 18.7.2011 kl. 19:34
Jón Ásgeir er sagð'ur hafa heitið þvi að ná öllum yfirráðum á Islandi og sýnist ætla ná þvi marki með glans ! ...ENGIN MÓTMÆLIR .....þögn er sama og samþykki !!!!!
Ransy (IP-tala skráð) 18.7.2011 kl. 22:40
Nauðsynlegt er að fram fari ítarleg rannsókn á tengslum Jóns Ásgeirs og stjórnmálamanna.
Karl (IP-tala skráð) 19.7.2011 kl. 08:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.