Engin pólitísk stefna um nýskipan atvinnulífsins

Vinstriflokkarnir í ríkisstjórn eru hvorugir með atvinnustefnu og láta reka á reiðanum í endurskipulagningu atvinnulífsins. Ríkisvaldið lætur banka og skilanefndir um að ákveða svipmót atvinnulífsins eftir hrun.

Hugmyndafræðilega er vinstriflokkunum nokkur vorkunn. Annar flokkurinn, Vinstri grænir, er með ríkisafskiptakúltúr í farteskinu á meðan hinn, Samfylkingin, sökkti sér ofan í útrásarheimspeki  og hefur ekki enn náð áttum.

Hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Framsóknarflokkurinn hafa tekið á sig rögg til að setja í gang umræðu um þær meginhugmyndir sem eiga að móta framtíðarskipan atvinnulífsins. Óli Björn Kárason varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins er nánast eina heiðarlega undantekningin.

Á meðan efnahagskerfið mjatlast áfram og aðrir en stjórnvöld leggja línurnar verður átakanlega opinbert hversu lítilfjörlegu hlutverki stjórnmálaflokkar þjóna.


mbl.is Endurskipulagning tekur of langan tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband