Fimmtudagur, 2. júní 2011
Bankablóðsugur í boði Steingríms J.
Fulltrúar Arion banka sögðu á fundi nýverið að skylda þeirra gagnvart erlendum eigendum að hámarka arð bankans kæmi í veg fyrir að bankinn gæti komið til móts við kröfur lántakenda um leiðréttingar i sama mæli og t.d. Landsbankinn.
Hvort heldur að Arion og Íslandsbanki lúti öðrum starfsreglum en Landsbankinn vegna þess að tveir fyrrnefndu bankarnir eru í eigu erlendra vogunarsjóða eða hvort eignarhaldið er notað sem skálkaskjól skal ósagt. Hitt er augljóst að bankarnir græða stórfé á efnahagskerfi sem stendur því sem næst kjurrt.
Milljarðahagnaður Arion og Íslandsbanka fer beint til erlendu eigendanna vegna þess að Steingrímur J. Sigfússon breytti um stefnu í endurreisn bankakerfisins og lét tvo endurreista banka í hendur kröfuhafa.
Samanlagt bókfært virði banka um 200 milljarðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Steingrímur er bara það sem ekki er hægt að orða á kurteisislegri máta; Viðbjóðslegur landníðingur.
Erlendir kröfuhafar inn undir hjá IMF og líklega með stolnu áhættufé grófustu útrásarsvindlaranna voru nógu valdamiklir til að valda aðdáun einræðiskommúnistans gegn einstaklingum í landinu. ...Þá var hægt að "einkavæða" aftur!
Fegin að ég hætti viðskiptum hjá Arajón banka á sínum tíma.
jonasgeir (IP-tala skráð) 2.6.2011 kl. 11:30
Er starfsfólkið sem hundeltir einstaklinga og fyrirtæki á kaupaukakerfi?
Hvers vegna er viðskiptaráðherrann ekki spurður að því?
Karl (IP-tala skráð) 2.6.2011 kl. 19:19
Þar sem þjóðfélagið er hálfdautt þá ætti frekar að kalla Steingrím J NÁRIÐIL
valgeir einar ásbjörnsson (IP-tala skráð) 2.6.2011 kl. 21:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.