Málefni á skjön við stjórnmálaflokka

Í Reykjanesbæ situr meirihluti sjálfstæðismanna sem hafa um árabil beitt sér opinberri atvinnusköpun með þeim afleiðingum að bæjarsjóður er gjaldþrota. Fjármálaráðherra er formaður flokks sem er arftaki  flokka róttækra sósíalista er höfðu þjóðnýtingu og ríkisrekstur á dagskrá sinni. Fjármálaráðherra segir skýrt og ákveðið að það sé ekki ríkisins að skapa störf. Kemur Sjálfstæðisflokkurinn og segir jú, víst á ríkið að skaffa atvinnu?

Þegar málefni eins og ríkisrekstur og einkarekstur eiga ekki vísan samastað hjá stjórnmálaflokkum má spyrja hvort  stjórnmálakerfið sem við búum við þjóni sínum tilgangi.

Stjórnmál í hugtakapörum eins og hægri-vinstri, ríkisrekstur-einkarekstur og einstaklingsfrelsi-samfélagshyggja eiga lítið erindi í umræðuna í dag.

Samfylkingin heldur að okkur tvíhyggju um frjálslyndi-stjórnlyndi; telur sjálfa sig frjálslynda en heimtar meira stjórnlyndi með aðild að Evrópusambandinu þar í boði eru staðlar um stórt og smátt en harla lítið frjálslyndi.

Ögmundur Jónasson vekur athygli á hversu pólitíski rétttrúnaðurinn verður hatrammari eftir því sem stjórnmálakerfið endurspeglar verr málefni samfélagsins.

Íslensk stjórnmál standa í hamskiptum og þau verða sársaukafull.


mbl.is Ekki hlutverk ríkisins að skapa störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Jú, loksins hittir Steingrímur naglann á höfuðið en hann segir bara hálfa söguna:

http://www.amx.is/fuglahvisl/17103/ 

Steingrímur er sennilega lélegasti fjármálaráðherra lélegustu ríkisstjórnar þessa lands.

Páll, það er alveg augljóst að hið opinbera, hvort sem er ríki eða sveitarfélög, er orðið alltof stórt og eru að sinna verkefnum sem einkaðilar geta vel sinnt.

Er ekki bara málið að Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ séu áttavilltir samfylkingarmenn?

Helgi (IP-tala skráð) 26.4.2011 kl. 15:01

2 Smámynd: Alfreð K

Það er allt of mikið af samfylkingarmönnum í Sjálfstæðisflokknum. Kominn tími til að senda þá heim. :D

Alfreð K, 26.4.2011 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband