Föstudagur, 11. mars 2011
Sódómískir viðskiptahættir
Viðtalið í inngangi umfjöllunar Kastljóss um samráð kortafyrirtækjanna við Halldór Guðbjarnason forstjóra Visa var kostulegt. Halldór sagði það hefði verið eins og að fá einhvern upp í rúm til sín þegar samkeppnisyfirvöld gerðu húsleit. Á daginn kom að rúmfélagi Halldórs var Ragnar Önundarson forstjóri ,,meints" samakeppnisaðila.
Bréfin sem fóru á milli Halldórs og Ragnars sýndu inn í gjörspilltan heim íslenskra viðskipta. Þeir félagar voru fyllilega meðvitaðir að sambandið þeirra á milli var ósiðlegt og ólöglegt enda fylgdu gagnkvæm tilmæli um að eyða samskiptunum.
Fuglar eins og Halldór og Ragnar eiga heima á bavið lás og slá. Það er beinlínis hlægilegt að niðurstaðan í málinu skuli vera sekt á kortafyrirtækin. Á meðan sódómistar íslensks viðskiptalífs sleppa jafn billega stunda þeir áfram iðju sína - aðrir borga.
Skiptu markaðnum á milli sín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Og enn á eftir að koma í ljós hvernig rannsóknin á Valitor fer, þar sem Höskuldur Ólafsson var við stjórnvöldin.
Gunnar Heiðarsson, 11.3.2011 kl. 07:11
"Leynd yfir fundum fjármálafyrirtækja. Fulltrúar banka, sparisjóða og kortafyrirtækja funda reglulega. Forstjóri Reiknistofu bankanna afhendir ekki fundargerðir." (Fréttablaðið 23. febrúar 2007:2).
http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=%20272864&pageId=3933920&lang=is&q=Reiknistofa%20bankanna
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 09:10
Við verðum að koma því í lög hér að þeir sem hafa verið dæmdir fyrir brot á samkeppnislögum fái ekki að vera í forsvari eða ábyrgir í fyrirtækjarekstri aftur. Einnig þurfum við að koma í lög að þeir sem hafa sýnt óábyrga hegðun við rekstur fyrirtækja, þ.e. keyrt þau í þrot og þá ýmist meðvitað eða með verulega óábyrgum hætti, verði meinað að vera í forsvari fyrir eða ábyrgir fyrir fyrirtækjum. Þessháttar lög er að finna í ESB, eitthvað gott getur nú komið þaðan.
Gunnar Rúnarsson (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 17:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.