Laugardagur, 26. febrúar 2011
Stjórnarskrárkeppni í RÚV
Stjórnlagaþing er gæluverkefni Samfylkingarinnar þótt aðrir hafi á sínum tíma mælt með því að efna til slíks þings. Ógilda kosningin frá í haust getur ekki orðið grundvöllur að stjórnlagaráði heldur verður að hugsa málið upp á nýtt.
Alþingi fer með það hlutverk að breyta stjórnarskránni. Ef vilji er til að fá fleiri aðila til að gera tillögu um breytingu á stjórnarskránni er hægt að auglýsa útboð til áhugasamra og veita áhugahópum fjárstuðning til að setja saman texta.
Einnig væri hægt að vera með stjórnarskrárkeppni í RÚV með svipuðu sniði og sönglagakeppnin þar sem framlag Íslands til Júróvisjón er ákveðið.
Stjórnlagaþingið getur beðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hún er þegar í gangi í boði allra landsmanna.
Sindri Karl Sigurðsson, 26.2.2011 kl. 20:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.