Sunnudagur, 13. febrúar 2011
Upp úr skotgröfunum með Ólafi Ragnari
Forseti Íslands hvatti þjóðina til að sameinast um framtíðarverkefnin og hætta smáskærum. Í Silfri Egils sagðist Ólafur Ragnar nánast tilbúinn að leiða þjóðina undir sameiningarmerkjum til endurreisnar. Atburðarásin gæti orðið eftirfarandi.
Þjóðin sameinast um að krefjast þjóðaratkvæðis um Icesave. Forsetinn hlustar á þjóðina og synjar lögunum staðfestingu. Þegar þjóðin hafnar Icesave falla forystumenn þriggja flokka; Samfylkingar, Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins.
Í framhaldi verður boðað til þingkosninga. Ólafur Ragnar tekur að sér að leiða endurreisnarflokkinn sem byggir á þjóðlegri íhaldssemi og traustum gildum ábyrgra ríkisfjármála og borgaralegri velferð þar sem stétt stendur með stétt.
Byrjum á því að krefjast þjóðaratkvæðis um Icesave.
Sex þúsund manns gegn Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
kjósum.is
Guðmundur Ásgeirsson, 13.2.2011 kl. 14:27
JaHá
Halldór Jónsson, 13.2.2011 kl. 15:16
Hef aldrei fyrr verið eins sammála Halldóri.
Elle_, 13.2.2011 kl. 15:37
Slagorðið mitt:enginn kúgar Íslending!
Helga Kristjánsdóttir, 13.2.2011 kl. 16:27
Þú ert draumspakur maður Páll, þykir mér, að minnsta kosti um drauma Ólafs Ragnars.
Gústaf Níelsson, 13.2.2011 kl. 23:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.