Þriðjudagur, 9. nóvember 2010
Rýnivinna Össurar og störfin á landsbyggðinni
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur til streitu umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og kostar til þess milljörðum króna. Á sama tíma lokar ríkisvaldið sjúkrarými á landsbyggðinni og segir fólki upp störfum.
Rýnivinna Össurar næstu vikur og mánuði felur í sér að flugvélafarmar af íslenskum embættismönnum eru sendir á kostnað skattgreiðenda til Brussel þar sem þeir bera saman bækur sínar við félaga í elítunni.
Samfylkingin er enn í útrás; fjölgar störfum í útlöndum en fækkar þeim á landsbyggðinni.
634 gætu misst störf sín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll ætlar þú að mæta seinnipartinn og berja tunnurnar?
Sigurður Haraldsson, 9.11.2010 kl. 12:11
Ég vil heldur að við syngjum.
Helga Kristjánsdóttir, 9.11.2010 kl. 14:03
Helga já það er ekki vitlaus hugmynd.
Sigurður Haraldsson, 9.11.2010 kl. 16:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.