Sunnudagur, 31. október 2010
Úrtölur aðildarsinna
Evrópusambandsaðild er forsenda þess að unga kynslóðin vilji búa Ísland, segir raunamæddur miðaldra aðildarsinni í Silfri Egils í dag. Hvaðan Andri Geir hefur vitneskju sína um ungt fólk á Íslandi er erfitt að segja til um enda maðurinn hagvanari erlendis en heima á Fróni.
Reynslurökin segja allt aðra sögu en framtíðarspuni Andra Geirs. Ungir Íslendingar sem sótt hafa nám til útlanda hafa einatt skilað sér heim þrátt fyrir að eiga kost á starfi erlendis, hvort heldur í ESB-ríkjum eða annarsstaðar.
Þegar málefnafátækt aðildarsinna er orðin slík að spádómar um landauðn eru hafðir í frammi er augljóst að örvæntingin hefur gripið um síg í þeirra röðum. Skiljanlega þar sem málstaður þeirra er dæmdur.
Athugasemdir
100% sammála. Það eru fleiri sem sitja á rassinum útlöndum og tala málum ESB sinna án þess að vilja taka þátt í baráttunni sem Ísland gengur nú í gegnum. Mig blöskrar, þegar ég heyra slíka aðila básúna um ágæti ESB, hafa samt ekki þor og dug til að vera á landinu sjálfir. Íslendingar munu ekki láta hræðsluáróður buga sig til þess að kjósa með ESB, slíkt hefur þveröfug áhrif á landann eins og við þekkjum sjálf.
Linda, 31.10.2010 kl. 19:29
Það er nú ekki lengra síðan en í maí sl. sem téður Andri Geir, sem í dag mætti í Silfur Egils, sagði á bloggi sínu að rökin fyrir því að taka upp evru hér á landi væru ekki nógu sterk og að við ættum að taka upp dollarann. Enda myndum við ekki geta tekið upp evru fyrr en eftir 30-40 árum eftir að við gengjum í Evrópusambandið. Nú lofar hann sambandið og evruna. Þetta er nú æði einkennilegur málflutningur snúast svona eftir því hvernig vindarnir blása að því er virðist.
Hjörtur J. Guðmundsson, 31.10.2010 kl. 19:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.