Sunnudagur, 11. júlí 2010
Þjóðarhagsmunir og prósentur Samfylkingar
Sannfæring Samfylkingarinnar er að þjóðarauðlindir til sjávar og sveita eru best komnar í höndum útlendinga. Eins og allar þjóðir hafa Íslendingar reynt að standa vörð um auðlindir sínar og sett til þess lög. Ráðherra Samfylkingarinnar leiðbeinir útlendum braskara að komast hjá lögum og reglum sem gilda um fjárfestingar útlendinga í þjóðarauðlindum.
Samfylkingin telur það hlutverk sitt að koma almannaeigum í verð hjá bröskurum og hirða sínar prósentur.
Útrásarhugarfarið er allsráðandi í Samfylkingunni. Björgólfur Thor Björgólfsson fékk til liðs við sig fjárfesti úr Samfylkingunni og í framhaldi voru sett lög fyrir gagnaver Björgólfs Thors. Það negldi samninginn fyrir Björgólf Thor að hann þóttist hafa útlending með sér í verkefninu.
Vill fund um Magma í iðnaðarnefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Stærstu mistök Íslandssögunnar er EES samningurinn. Samfylking og hluti af Vinstri Grænum eru á fullu að ganga frá inngöngu okkar í ESB.
Baldvin Nielsen Reykjanesbæ
B.N. (IP-tala skráð) 11.7.2010 kl. 06:39
Þetta eru fæðingsarhálfvitar, veruleikafirrt fífl. Ég vil fá Davíð og co aftur í ríkisstjórn. Þeir geta mokaþ þessum skít eftir sjálfa sig betur en Samfyl. og VG.
spritti (IP-tala skráð) 11.7.2010 kl. 10:06
Það er að koma betur og betur í ljós - að Samfylkingin er spilltasti stjórnarflokkur Íslands - EVER!
Birgir Viðar Halldórsson, 11.7.2010 kl. 10:19
Vekjum sérstaka athygli á grein um þetta mál á vefsíðu Kristinna stjórnmálasamtaka: Ráðfrú Samfylkingar tók frumkvæði að því að brjóta niður varnir gegn því að útlend fyrirtæki leggi undir sig orkugeirann á Íslandi!
Kristin stjórnmálasamtök, 11.7.2010 kl. 11:06
Sammála Baldvin hér að ofan. Held að menn ættu aðeins fara að hugleiða hvert tjónið vs. hagurinn hefur verið fylgjandi því að Alþýðuflokkurinn (Baugsfylkingin) neyddi EES samninginn uppá þjóðina á sínum tíma. Ekki síst vegna ESB biluninnar sem fylgir þessu liði í dag.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 11.7.2010 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.