Þriðjudagur, 29. júní 2010
Tveir kostir Samfylkingar
Fréttir frá Evrópusambandinu næstu árin verða slæmar og lítt til þess fallnar að auka áhuga Íslendinga á inngöngu. Innanlands eru aðstæður þær að krónan vinnur sína vinnu í þágu þjóðar, dreifir byrðum og bætir samkeppnishæfi stóru gjaldeyrisgreinanna, sjávarútvegs og ferðaþjónustu. Eftir hrun útrásarinnar er almenningur ekki ginnkeyptur fyrir ævintýramennsku í útlöndum, hvorki fjármálalegri né pólitískri.
Öll vötn falla til Dýrafjarðar, afsakið, Straumsvíkur; erlend þróun, samfélagskraftar innanlands og umræðan salla niður rökin fyrir aðild að Evrópusambandinu. Kringumstæðurnar speglast í stjórnmálaflokkunum, þar stendur Samfylkingin ein með umsóknina.
Samfylkingin á enn þess kost að draga rökrétta niðurstöðu af stöðu mála og hafa frumkvæðið að því að draga umsóknina um aðild til baka. Samfylkingin getur áfram barist fyrir aðild að Evrópusambandinu og færi svo að aðrir flokkar tækju undir og traustur meirihluti myndaðist fyrir umsókn á alþingi yrði sótt um á ný. Velji flokkurinn þennan kost er raunhæft að ríkisstjórn Jóhönnu Sig. fái meiri starfsfrið í haust og vetur og þar með nýtt tækifæri til að sanna sig.
Hinn kostur Samfylkingarinnar er að berjast um hæl og hnakka, halda umsókninni til streitu og verða hornkerling íslenskra stjórnmála.
Athugasemdir
En hvernig stod kronan sig tegar hun var alltof sterk?
Sleggjan og Hvellurinn, 29.6.2010 kl. 07:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.