Laugardagur, 5. júní 2010
Trúður æðsti yfirmaður menntamála
Æðsti yfirmaður menntamála reykvískra barna er trúður, þökk sé Samfylkingunni. Þegar borgarstjórinn væntanleg, Jón Gnarr, heimsækir grunnskóla borgarinnar getur hann án efa gefið börnum hollráð.
- Djókaðu þig í gegnum lífið, gæti verið eitt.
- Skemmtilegheit borga skuldirnar, er líklegt heilræði.
- Ekkert vandamál er það alvarlegt að ekki megi hlæja sig frá því, er sennileg lífsspeki úr munni borgarstjórans sem ætlar að vera skemmtilegur umfram allt.
Jón Gnarr og Besti flokkurinn er vinstraframboð sem gafst upp á öfgafemínisma, segir AMX.
Kannski að við fáum að sjá yfirmanna menntamála í borginni leiðast hönd í hönd með menntamálaráðherra og útskýra fyrir börnum mikilvægi menntunar.
Ætlar að vera skemmtilegur borgarstjóri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.