Jóhannes í Bónus er ekki glæpon

Jón Ásgeir sonur hans borgar alltaf allar sínar skuldir.

Wernersbræður eru bestu vinir.

Íslensku bankarnir voru traustir.

ESB umsóknin er í góðum farvegi.

Icesave-samningurinn er besti samningur sem nokkur ríkisstjórn hefur gert.

Jóhanna Sig. er ekki frekja.

Samfylkingin er ekki Baugsfylking.

Pálmi í Fons greiðir alltaf markaðverð fyrir flugfélögin sín.

Í dag er ekki föstudagur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þetta kallast að hitta naglann á höfuðið.

Ragnhildur Kolka, 26.2.2010 kl. 12:14

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Góður.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 26.2.2010 kl. 12:23

3 identicon

12 stig!

Baldur (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 16:25

4 identicon

Jóhannes er glæpon, ég tapaði nær 25 milljónum á honum.

Öddi (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 18:25

5 identicon

Nú er Jóhannes kominn í enn eitt grátdrottningarviðtalið í DV.  Þeir feðgar hafa löngum verið veruleikafirrtir en að halda að það sé enn þá hægt að koma grátandi í fjölmiðla og láta vorkenna sér og sínum er með ólíkindum.  Þjóðin er fyrir löngu komin með upp í kok á þessum landráðafeðgum og vill losna við þá sem fyrst úr íslensu viðskiptalífi.  Feðgarnir hafa valdið ómældum skaða fyrir almenning með "viðskiptasnilld" sinni sem við verðum ár eða áratugi að vinna okkur út úr.

Sigurður (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 19:11

6 identicon

5 stjörnur (O:

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband