Sósíalisminn ´68 og frjálshyggja ´08

Það voru heiðarleg mistök að vera sósíalisti fram að innrás Varsjárbandalagsins í Tékkóslóvakíu 1968 og áþekkt má segja um frjálshyggju fram að hruni 2008. Sósíalistar báru í bætifláka fyrir fjörtíu árum og sögðu að ríkissósíalismi Sovétríkjanna væri dauður en sanna útgáfan myndi lifa. Frjálshyggjumenn samtímans bera álíka fyrir sig og segja hugmyndafræðina rétta en menn hafa brugðist.

Sósíalismi er til í ýmsum útgáfum og frjálshyggja sömuleiðis. Hvorttveggja er engu að síður steindautt sem hugmyndafræði. Einfaldlega af þeirri ástæðu að reynslan sýnir ótvírætt þann ófarnað sem hlýst af þessum hugmyndakerfum.

Tvær þjóðfélagsstefnur verða helst áberandi næstu árin og mun birtast í ýmsum myndum. Annars vegar frjálslynd alþjóðahyggja og hins vegar þjóðleg íhaldssemi. Seinni stefnan verður ráðandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Það hafa verið skrifuð heilu bókasöfnin um galla kommúnismans. Frank Zappa, af öllum mönnum, náði að útskýra þá í einni setningu:

"Communism doesn't work because people like to own stuff."

Þetta er ekki flókið.

Haraldur Hansson, 24.1.2010 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband