Laugardagur, 23. janúar 2010
Fullveldið ekki einkamál Jóhönnu, Össurar og Steingríms J.
Undarleg framkoma þríeykisins sem ber aðalábyrgðina á stjórnleysi landsins ber æ meiri keim af einrænu umsetinna foringja sem engum treysta og engir treysta. Þingmenn stjórnarflokkanna heyra ekkert af stjórnsýsluathöfnum þar sem fullveldi landsins er í veði.
Í véfréttastíl er talað um aðkomu erlendra ríkja að íslenskum málum. Foringjar stjórnarandstöðunnar eru kallaðir í byrgi Jóhönnu trekk í trekk án þess að málefnalegar ástæður liggi fyrir.
Þríeykið Jóhanna, Össur og Steingrímur J. verða að heyra skýrt og ákveðið að fullveldi landsins er ekki einkamál þeirra.
![]() |
Erlent ríki kannar sáttagrundvöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hárrétt hjá þér Páll. Fullveldið, hagur lands og þjóðar til hugs og handar er ekki, má ekki og má alls ekki vera þeirra einkamál, eins og þau í sjálfhverfu sinni halda.
Það versta er þó að margir eru þeir sem "makka rétt" með þeim og það er það alvarlega. Þar á ég td. við þá sem velja það markvisst að þegja með þeim og jafnvel þagga niður gagnrýni á þau, ekki síst Össur, sem sumir "virtir" og áhrifamiklir fjölmiðlamenn gera í sérhagsmunagæslu sinni.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 23.1.2010 kl. 14:44
zzzzzzzzzzzzzzzzzzz Geisp
Finnur Bárðarson, 23.1.2010 kl. 22:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.