Þórður Snær er óviti nr. 1

,,Óvinur nr. 1" er í fyrirsögn leiðara Þórðar Snæs Júlíussonar í Fréttablaðinu 11. mars 2013. Morgunblaðið birti leiðarann síðast liðinn fimmtudag í tilefni af tíu ára afmæli afnáms haftanna sem ríkisstjórn Sigmundar Davíðs stóð fyrir.

Í leiðara Þórðar Snæs í Fréttablaðinu fyrir tólf árum er Sigmundur Davíð sagður óvinur þjóðarinnar númer eitt. Leiðarinn er skrifaður hálfum öðrum mánuði fyrir þingkosningar. Sigmundur Davíð, þá formaður Framsóknarflokksins, kynnti áætlun um að afnema fjármagnshöftin með skattlagningu á þrotabú föllu bankanna. Samkvæmt Þórði Snæ var Sigmundur Davíð þar með orðinn óvinur þjóðarinnar. Þórður Snær skrifaði:

Þess­ar hug­mynd­ir Sig­mund­ar eru því miður með öllu óraun­hæf­ar. Hér er verið að boða klára þjóðnýt­ingu er­lendra eigna kröfu­hafa [...]

[Sigmundur Davíð hefur] ekki eytt mikl­um tíma í raun­veru­leik­an­um. Sama hversu vel það hljóm­ar í eyr­um skuldugra heim­ila að hlusta á lof­orð hans þá er orðið tíma­bært að all­ir sjái að keis­ar­inn er ekki í nein­um föt­um. Þegar raun­veru­leik­an­um er stungið í sam­band og gereyðing­ar­mátt­ur kosn­inga­víxla Fram­sókn­ar­flokks­ins er met­inn þá er al­gjör­lega ljóst að þeir munu hafa fleiri nei­kvæðar af­leiðing­ar en já­kvæðar.

Þrátt fyrir andóf Þórðar Snæs og vinstrimanna veitt þjóðin Sigmundi Davíð brautargengi í kosningunum vorið 2013. Sigmundur Davíð varð forsætisráðherra. Hann efndi kosningaloforðið, beitti fullveldinu og setti lög um framlag þrotabúa bankanna til efnahagslags stöðugleika á Íslandi. Sigmundur Davíð afnam höftin, gerði upp efnahagslegan þátt hrunsins. Maðurinn sem Þórður Snær sagði ekki tengdan ,,raunveruleikanum". 

Tólf ára leiðari Þórðar Snæs fær dreifingu á samfélagsmiðlum undir fyrirsögninni Óviti nr. 1. Raunveruleikatengsl Þórðar Snæs eru sérkennileg, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Fyrir síðustu kosningar var hann afhjúpaður sem netníðingur er tók einkum fyrir konur í ábyrgðastöðum undir dulefninu þýska stálið. Hann á einnig aðild, beina eða óbeina, að byrlunar- og símamálinu þar sem blaðamenn áttu samstarf við andlega veika konu um að byrla Páli skipstjóra Steingrímssyni og stela síma hans.

Í dag er Þórður Snær framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, skrifar skoðanapistla og plottar með Helga vini sínum Seljan á RÚV að ljúga í fréttum. Óvitar eiga framavon í Samfylkingunni, bæði fermingarbörn og áhugamenn um þau.

 

 


Bloggfærslur 2. ágúst 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband