Miðvikudagur, 31. janúar 2024
Namibíski saksóknarinn vissi ekki um Íslendingana
Í viðtengdri frétt er sagt frá sex manna teymi héraðssaksóknara til Namibíu. Fréttin byggir á frásögn namibísku útgáfunnar Namibian. Þar er haft eftir Paulus Noa hjá spillingarlögreglunni að Íslendingarnir sex aðstoði namibísk stjórnvöld til að komast til botns í ásökunum RÚV, Heimildarinnar og Wikileaks um að Samherji hafi greitt mútur þar syðra um miðjan síðasta áratug.
Tilfallandi gerði því skóna að íslenska senditeymið fylgdi eftir bréfi Finns Þórs Vilhjálmssonar saksóknara hjá héraðssaksóknara frá október 2022 um að namibísk stjórnvöld aðstoði þau íslensku við að ljúka rannsókn hérlendis.
Er kannski um að ræða gagnkvæma aðstoð? Íslendingar fái aðstoð frá Namibíumönnum og veiti á móti upplýsingar sem Namibíumenn þurfi á að halda til að ljúka sinni rannsókn?
Ef svo er hlýtur namibíski saksóknarinn sem fer með forræði málsins að eiga langa og stranga fundi með íslensku sexmenningunum. Hún heitir Martha Imalwa og er ríkissaksóknari Namibíu. Imalwa kom með utanríkisráðherra Namibíu og aðstoðarforsætisráðherra, Netumbo Nandi-Ndaitwah, í heimsókn til Íslands sumarið 2022. Ekki hittu þær stöllur sjálfan upphafsmann ásakana fjölmiðla, Jóhannes Stefánsson uppljóstrara. Jóhannes segist þó vinna náið með namibískum yfirvöldum að upplýsa þau ósköp sem fóru fram er hann stýrði útgerð Samherja í Namibíu fyrir áratug.
Hvað kemur á daginn? Jú, í Namibian er ríkissaksóknari Namibíu, Martha Imalwa, spurður út í heimsókn Íslendinganna. Orðrétt segir í frétt Namibian:
Imalwa sagðist ekki vita um íslenska sendinefnd í Namibíu að aðstoða í Fishrot-málinu.
(When approached for a comment, Imalwa said she was unaware of the Icelandic delegation currently in Namibia to assist in the Fishrot case)
Namibíumálið er kallað Fishrot-málið í Afríkuríkinu. Ef ríkissaksóknarinn í Namibíu veit ekkert um tilvist íslenska teymisins er augljóst hvað hér er á ferðinni.
Sex manna íslensk sendinefnd er gerð út á kostnað ríkissjóðs til að blekkja. Á blaðamannamáli kallast þetta ,,fjölmiðla-stönt" - uppákoma án efnislegs innihalds. Tilgangurinn er að villa sýn á kjarna málsins: hvorki í Namibíu né á Íslandi eru til haldbær gögn sem gefa til kynna mútugjafir Samherja. Þó er rannsókn í báðum ríkjum komin á fimmta ár. Heldur rýr eftirtekja.
Tilfallandi vonar að stjórnkerfið í Namibíu sé ekki jafn spillt og það íslenska. Hér leyfðist að Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari við embætti héraðssaksóknara rannsakaði Namibíumálið sem bróðir hans, Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður á Heimildinni, bjó til í samvinnu við Helga Seljan á RÚV og Kristinn Hrafnsson á Wikileaks. Þrjú skemmd epli í fjölmiðlatunnunni og ákæruvaldið eltir áfengis- og dópruglið í Jóhannesi Stefánssyni uppljóstrara. Hafa opinberir starfsmenn sérstakt leyfi að skilja dómgreindina eftir heima þegar þeir fara í vinnuna?
![]() |
Aðstoða stjórnvöld í Namibíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)