Fimmtudagur, 28. september 2023
Skattsvikafréttir RÚV, friđhelgi fréttamanna
Til skamms tíma sagđi RÚV reglulega fréttir af skattsvikum. RÚV er ríkisfjölmiđill og ríkiđ innheimtir skatta. Fréttir af skattsvikum ţjóna tvennum tilgangi. Í fyrsta lagi ađ vekja athygli á ţeim og segja alţjóđ ađ árvökult auga Skattsins fylgist međ og nćr, a.m.k. stundum, í skottiđ á ţeim sem stela frá samneyslunni.
Í öđru lagi eru skattsvikafréttir forvörn. Međ afhjúpun á skattsvikum eru send skilabođ út í ţjóđfélagiđ; undanskot frá skatt er ekki í lagi. Ţau eru ólögleg sérgćska á kostnađ almannahags.
RÚV rennur blóđiđ til skyldunnar ađ vekja athygli á ţeirri meinsemd sem skattsvik eru. Ríkisfjölmiđillinn er fjármagnađur međ sköttum. Ekkert skattfé, ekkert RÚV.
Af fyrri fréttum um undanskot frá skatti er ein sem sagđi frá útleigu á íbúđum í gegnum Airbnb, 15 m.kr. skattsvik, sagđi ţar. Nýlegri frétt, tveggja vikna, er ađ 19 m.kr. skattlagabrot teljist meiriháttar.
RÚV hefur, sem sagt, í gegnum tíđina haft vökult auga međ skattsvikamálum og sagt fréttir af ţeim, gjarnan í umvöndunartón í fyrirsögn og texta.
En RÚV situr á einni skattsvikafrétt sem varđar fréttamann ríkisfjölmiđilsins sem einnig er formađur Blađamannafélags Íslands, stéttafélags fréttamanna RÚV.
Sigríđur Dögg Auđunsdóttir játađi 11. september ađ hafa stungiđ undan skatti. Líkleg fjárhćđ undanskotsins er 10 til 20 milljónir króna.
En nú ber svo viđ ađ RÚV ţegir fréttina sem gengur ljósum logum í samfélaginu. Höfuđpersóna fréttarinnar situr ritstjórnarfundi á Efstaleiti og semur um kaup og kjör fréttamanna.
Kannski er ný starfsregla á RÚV: viđ segjum ekki skattsvikafréttir, ţćr trufla vinnumóralinn á Efstaleiti og gera okkur erfiđara fyrir í kjarabaráttunni.
Nýja fréttareglan myndi stađfesta ţann grun ađ RÚV starfar ekki í ţágu almennings. Ríkisfjölmiđillinn er starfrćktur alfariđ og eingöngu fyrir starfsmenn, vini ţeirra og góđkunningja.
Á útvarpsţingi, sem haldiđ er í dag, hlýtur Stefán Eiríksson útvarpsstjóri ađ kynna nýja stefnu: Ríkisfjölmiđill í ţágu starfsmanna, sem frjálst er ađ brjóta landslög.
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)