Hugur, líkami og leiðrétting

Leiðrétting á kyni felur í sér kyn hafi verið rangt. En það er ómöguleiki. Einstaklingur fæðist af öðru hvoru kyninu. Það er hversdagsleg staðreynd. Hlutverkaleikir barna eru önnur hversdagsleg staðreynd.

Allir vita að hugur og líkami fæðast sem einn og sami hluturinn, nýburi með meðvitund. Hugurinn er ekki aðgreindur frá líkamanum og er sem slíkur kynlaus. Ekki er vitað um neina hugsun sem sérgreind er öðru kyninu. Einstaklingar tileinka sér sjónarmið og hugmyndir sem draga dám af líkama þeirra. Skiljanlega, maður hefur þennan eina líkama sem er ferðafélaginn út ævina.

Bábiljufræði, að hægt sé að fæðast í röngum líkama, geta skaðað óþroskaða einstaklinga, barna og ungmenna. Ekki tjóar að banna heimskar hugmyndir, það gerir þær spennandi og er andstætt góðum siðum málfrelsis.

Góðir siðir eru einnig að vekja athygli á firrum sem eru hættulegar börnum og unglingum. Áfengi og fíkniefnum er ekki haldið að ungmennum og það á ekki að kenna þeim sannanlegar ranghugmyndir - að hægt sé að fæðast í röngum líkama. Eina leiðin til að fá þá útkomu að vera í röngum líkama er að lenda á villigötum með hugsun sína, líkt og þekkist hjá áfengis- og fíkniefnaneytendum. Líkja má útbreiðslu ranghugmynda um hvað gerist í getnaði og fæðingu við félagslegan vímuefnafaraldur.

Ef fermingarstrákur segði ,,mér líður eins og stelpu" væri það álíka ómarktækt og hann segði ,,mér líður miðaldra." Það er markleysa að ímynda sér sig af öðru kyni, aldri, hörundslit eða uppruna. Maður er það sem maður er og þarf að lifa með þeirri staðreynd.

Maðurinn fæðist annað tveggja karlkyns eða kvenkyns; ekki hvorugkyns og heldur ekki fiðraður eða hreistraður með sporði. Maðurinn er takmarkaður í líkamanum en getur leyft sér að hugsa hið ómögulega. Heilbrigði er að gera greinarmun á veruleika og ímyndun. Félagslegi vímuefnafaraldur síðustu ára gerir engan greinarmun á ímyndun og veruleika.

Þeir sem halda sig af röngu kyni þurfa ekki kynleiðréttingu heldur geðhjálp. 


mbl.is Kynleiðréttingar á börnum bannaðar í Texas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. júní 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband