Miðvikudagur, 20. desember 2023
Einn hælisleitandi, hálfur ættbálkur fylgir
RÚV, auðvitað, slær upp þeirri frétt að palestínskur hælisleitandi bíði í ofvæni eftir að fá fjölskylduna sína hingað til lands, á kostnað íslenskra skattborgara, auðvitað.
Af mynd af hælisleitandanum Naji Asar að dæma er hann á fertugsaldri. Hann gæti átt konu og kannski eitt til tvö börn, skyldi ætla. En nei, hér ekki ekki verið að tala um vestræna kjarnafjölskyldu. Gefum RÚV orðið:
Fjölskylda Naji sem hefur fengið alþjóðlega vernd hér á landi telur 8 manns, 5 fullorðna og 3 börn. Naji sótti um fjölskyldusameiningu fyrir 13 aðra fjölskyldumeðlimi fyrir rúmlega ári síðan og fékk vilyrði í október.
Einn hælisleitandi kemur til Íslands. Í nafni fjölskylduverndar koma 21, já tuttugu og einn, í viðbót. Þetta er ekki fjölskyldusameining heldur ættarmót.
Síðan hvenær er það stefna íslenskra stjórnvalda að hleypa hálfum og heilum ættbálkum inn í landið, sem í ofanálag hafa framandi siði er illa eða alls ekki semja sig að vestrænum samfélögum?
Samkvæmt tölfræði Útlendingastofnunar eru Palestínumenn þriðji stærsti hópurinn sem sækir um hælisvist á Íslandi. Ef hverjum hælisleitanda frá Palestínu fylgja heilu og hálfu ættirnar er um að ræða áhlaup til að skipta um þjóð í landinu. Hefur íslenskur almenningur verið spurður um þessa þjóðfélagstilraun?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)