Ţriđjudagur, 31. október 2023
Heimildin í taprekstri, herjar á Morgunblađiđ
Heimildin var stofnuđ sl. áramót međ sameiningu Stundarinnar og Kjarnans sem höfđu ratađ á glćpastigu međ RÚV í byrlunar- og símastuldsmálinu. Fjórir blađamenn Heimildarinnar eru sakborningar. Rekstur Heimildarinnar er í ógöngum. Í gćr opnađi Heimildin víglínu gagnvart Árvakri/Morgunblađinu. En ţađ er einmitt dótturfélag Árvakurs, Landsprent, sem prentar Heimildina.
Árásin á Morgunblađiđ var útvistuđ til annars fjölmiđils. Til verksins var fenginn blađamađurinn Kristinn Haukur Guđnason. Í vor var Kristinn Haukur blađamađur á Vísi.is og skrifađi tvćr fréttir fyrir Ţórđ Snć ritstjóra Heimildarinnar um Samherjamáliđ. Tilfallandi tók fréttirnar fyrir í bloggi.
Kristinn Haukur er kominn á DV en áfram í ţjónustu Ţórđur Snćs og Heimildarinnar. Síđdegis í gćr birti Kristinn Haukur frétt međ ţessari fyrirsögn:
Ađalsteinn stefnir Páli og Árvakri Prófmál um hvort Árvakur beri ábyrgđ á Moggablogginu
Skrítiđ, hugsađi tilfallandi međ sér. Ađalsteinn stefndi bloggara í vor og ţađ er ekkert ađ gerast í málinu. Réttarhald er ekki komiđ á dagskrá. Hvers vegna eru Heimildarmenn ađ setja ţađ á flot núna ađ ásamt tilfallandi Páli er Árvakri stefnt? Í fréttinni á DV kemur fram ađ Árvakri er ađeins stefnt til málamynda. Engar kröfur eru gerđur á hendur Árvakri. Fréttin er tittlingaskítur, ekkert nýtt er í henni. Samt er komiđ á framfćri ţeirri hugsun ađ Árvakur gćti veriđ í ábyrgđ međ tilfallandi fyrir ţađ eitt ađ halda á lífi frjálsi umrćđu sem óháđ er fjölmiđlum. Moggabloggiđ er opinn vettvangur fyrir alla til ađ tjá skođun sína á hverju sem er milli himins og jarđar.
En ţá rifjađist upp ađ Heimildin er rekin međ bullandi tapi. Á síđasta ári var tap miđlanna ađ baki útgáfunni 50 milljónir kr. Í ár kemst Heimildin hvorki lönd né strönd í markađssókn međ fjóra sakborninga á ritstjórn og trúverđugleika í ruslflokki.
Samkvćmt Gallup er međaltal innlita á heimildin.is ríflega 20 ţús. á viku. Til samanburđar eru innlit á Tilfallandi athugasemdir 13 ţús. á viku. Tilfallandi er einyrki sem bloggar í tómstundum og birtir einu sinni á dag. Heimildin er međ 15-20 manna ritstjórn.
Heimildin kemur einnig út á prenti og ţar er komin líklegasta skýringin á fréttinni í DV sem spyrđir saman tilfallandi og Árvakur. Heimildin er komin í stóra skuld viđ Landsprent, dótturfélag Árvakurs, og vill beita fjölmiđlaumrćđu fyrir vagn sinn í fyrirsjáanlegu uppgjöri. Hugmyndin hjá liđinu í kringum Heimildina er ađ gera sig ađ fórnarlambi, láta í ţađ skína ađ samsćri sé um ađ knésetja útgáfuna.
Sannleikurinn er sá ađ Heimildin er ótrúverđugur fjölmiđill sem ítrekađ hefur veriđ stađinn ađ ţví ađ skálda fréttir, misfara međ heimildir og segja hvítt svart. Almenningur hefur einfaldlega ekki áhuga á ađ láta ljúga ađ sér.
Svo er ţađ auđvitađ byrlunar- og símastuldsmáliđ, sem er í lögreglurannsókn. Heimildarmenn eru ekki beinlínis fermingadrengir í ljótasta máli íslenskrar fjölmiđlasögu. Blađamenn gerđust hjónadjöflar, misnotuđu andlega veika konu til byrla eiginmanni sinum og stela síma hans. Heiđarlegt fólk heldur sig frá Heimildinni.
Dćgurmál | Breytt s.d. kl. 06:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)