Blaðamenn: tjáningarfrelsi aðeins fyrir okkur

Blaðamenn harma að fá ekki tækifæri til að búa til reiðibylgju með dramatískum myndum af brottflutningi ólöglegra hælisleitenda. Heilagur réttur blaðamanna til gagnrýninnar umfjöllunar er brotinn, segir Sigríður Dögg formaður BÍ. 

Samtímis vilja blaðamenn banna gagnrýni á þeirra eigin störf. Þeir stefna tilfallandi bloggara, kæra Pál skipstjóra og koma í veg fyrir að hann megi tjá sig.

Hér fer ekki saman hljóð og mynd.

Blaðamenn haga sér eins og pólitískur upphlaupsflokkur en ekki fagstétt upplýsingamiðlara.

Blaðamenn og samtök þeirra geta ekki í einn stað fordæmt aðför að tjáningarfrelsi en í annan stað farið með offorsi gegn tjáningarfrelsi annarra. Ekki ef þeir vilja láta taka mark á sér.

Íslenskir blaðamenn eru ekki beittustu hnífarnir í skúffunni.

 


mbl.is Furðar sig á fyrirmælum lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. nóvember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband