Samstillt RSK-árás á Pál skipstjóra

Sex nafnlausir einstaklingar tilkynntu síđdegis í gćr til Facebook ađ reikningur Páls skipstjóra Steingrímssonar vćri falsreikningur. Facebook lokađi reikningi Páls, sem hefur veriđ  virkur á miđlinum frá 2009. Undanfariđ hefur skipstjórinn reglulega birt fćrslur ţar sem hann m.a. fer yfir bók blađamanna RSK-miđla (RÚV, Stundarinnar og Kjarnans) um Namibíumáliđ og hrekur liđ fyrir liđ rangar stađhćfingar og mistúlkanir.

Á ţriđjudag var Páll kallađur til yfirheyrslu vegna langsóttrar kćru Stefáns útvarpsstjóra og tveggja blađamanna á Stundinni og Kjarnanum.

Í gćr sendi starfsmađur RÚV, og formađur Blađamannafélagsins, kröfu til umbođsmanns alţingis ađ hefja athugun á rannsókn lögreglu á blađamönnum sem bendlađir eru viđ ađ byrla Páli skipstjóra og stela síma hans í byrjun maí í fyrra.

Málsvörn blađamannanna er ađ ţeir hafi fengiđ síma Páls frá ţriđja ađila og ţađ eitt til saka unniđ ađ skrifa fréttir upp úr símanum en hvergi komiđ nćrri byrlun og stuldi.

Skýtur skökku viđ ađ RSK-miđlar skuli berjast um hćl og hnakka gegn framgangi málsins í réttarkerfinu ef ađkoma ţeirra ađ málinu er jafn óveruleg og ţeir vilja vera láta.

Ţađ sem hingađ til er vitađ um máliđ gefur til kynna ađ ađild blađamannanna sé stórum meiri. Lögreglan er međ samskiptagögn er sýna regluleg samskipti blađamanna viđ gerandann, sem byrlađi Páli, stal síma hans og afhenti blađamönnum.

Lögreglan leggur gögn sín fram ţegar ákćrur er birtar og fyrir rétti. Blađamenn RSK-miđla mega ekki til ţess hugsa ađ alţjóđ fái vitneskju um starfshćtti blađamannanna, sem í ţokkabót eru allri hlađnir verđlaunum frá Blađamannafélagi Íslands.

Ţađ er sérstakt íhugunarefni ađ Páll skipstjóri er nánast einn um ađ koma sinni hliđ á framfćri á opinberum vettvangi - og notar til ţess Facebook. Fjölmiđar í stórum stíl skrifa fréttir í ţágu RSK-miđla, spyrja ekki gagnrýnna spurninga og leyfa sakborningum ađ stýra umrćđunni ţar sem hagsmunir ţeirra sjálfra eru í húfi.

RSK-máliđ sýnir íslenska fjölmiđlun í höndum sakborninga. Dapurt, svo ekki sé meira sagt.


mbl.is Umbođsmađur skođi mál lögreglu gegn blađamönnum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 3. nóvember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband