Miðvikudagur, 8. september 2021
RÚV leiddi Guðna í gildru
RÚV spennti gildru fyrir Guðna Bergsson fráfarandi forseta KSÍ. Guðni veitti RÚV viðtal. Markmið viðtalsins var að fá Guðna til að neita að kynferðisbrotamál, annað en áratugagamalt, hefði komið inn á borð KSÍ.
Guðni gekk í gildruna, neitaði, og daginn eftir var honum slátrað þegar upp komst að hann vissi um mál Kolbeins Sigþórssonar.
Foreldrar annarrar konunnar sem tengist máli Kolbeins viðurkenna að hafa beðið Guðna um trúnað. Þau segja að ekki hafi verið beðið um trúnað vegna fyrsta tölvupóstsins sem þau sendu á KSÍ. En þau báðu um trúnað, það er viðurkennt. Heiðursmaður eins og Guðni virðir trúnað í heilu lagi. Trúnaður í pörtum er ekki mikils virði.
Auk kvennanna tveggja, sem Kolbeinn greiddi sáttarfé til, og aðstandenda þeirra vissu Stígamót af sáttinni sem Kolbeinn hafði gert. Stígamót fengu 3 milljónir frá Kolbeini vegna atviksins.
Stígamót eru líklegasti samstarfsmaður RÚV við að spenna gildruna sem Guðni gekk í.
Öll kringumstæðurök hníga að samsæri RÚV og Stígamóta gegn KSÍ og íþróttahreyfingunni. Á Efstaleiti er kunnátta í þessum vinnubrögðum og margra ára reynsla.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 8. september 2021
Brotnir karlar í uppáhaldi öfgakvenna
Uppáhaldshópur öfgakvenna er nauðgarar. Þær stofna félagsskap til að halda verkum þeirra á lofti og gefa þeim krassandi viðurnefni, - fávita. Frummaðurinn steig ekki í siðræna vitið.
Þeir siðmenntuðu, sem ekki lifa í hugarheimi öfgakvenna, vita að nauðgarar eru brotnir menn, aumingjar sem ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.
Ekki er úrvalshópur öfgakvenna fjölmennur. Ríkislögreglustjóri heldur tölfræði yfir afbrot. Þar má lesa að meðalfjöldi nauðgana á ári tímabilið 2001-2019 er 137. Gefum okkur að gerendur séu allir karlar. Konur nauðga sjaldan. Meðalfjöldi karla á Íslandi yfir sama árabil er 159 þúsund. Hlutfall nauðgara af öllum körlum er því 0,09 prósent.
Öfgakonur leggja sig fram um að auka hróður örlítils minnihluta karla, 0,09%. Þær efna til herferða í fjölmiðlum og fá lagskonur í Stígamótum að básúna fyrir alþjóð þetta merkilega fyrirbæri, tvífætta nauðgarann. Kvenfólkið kennir heila menningu við ósköpin og talar um ,,nauðgunarmenningu." Svona eins og þegar rætt er um menningu Neandertalsmannsins.
Vitað er að sumar konur leggja sig eftir brotnum mönnum, aumingjum. Nýmæli er að heil félagshreyfing kvenna leggi nótt við nýtan dag að halda á lofti orðspori aumingjanna.
![]() |
Landsliðsþjálfari smætti reynslu þolenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)