Sunnudagur, 5. september 2021
Góð uppskera, hörmulegt ástand
Eyfirskir bændur fagna kornuppskeru eftir hlýtt sumar. Þjóð sem einu sinni lifði eingöngu á innlendum búvörum og kýs enn í dag íslenskt fæðuöryggi hlýtur að fagna með bændum fyrir norðan.
Nema, auðvitað, þeir glópar sem trúa á hamfarahlýnun. Sennilega stíga þeir ekki á stokk og ásaka eyfirska bændur um að hagnast á eymdarþróun jarðar. Það væri of augljós andstyggð á heilbrigðu lífsviðhorfi. En glóparnir brýna kutana ótt og títt í laumi og spretta fram með róginn við fyrsta tækifæri, líkt og sagði í Möwekvæði Þórarins Eldjárns.
Hér að neðan eru tíunduð örfá mótefni við andstyggðaróði þeirra sem sitja um lífshamingju annarra.
Roy Spencer heldur úti heimasíðu um hitamælingar á lofthjúpi jarðar. Frá árinu 1979 hefur hitinn í veðrahvolfinu, innsta lagi lofthjúpsins, að meðaltali hækkað um 0,13 gráður á áratug. Það þýðir að hiti hækkar um eina gráðu á Celcius á einni öld, hundrað árum. Það er ekki hamfarahlýnun heldur eðlilegar loftslagsbreytingar.
William Happer er loftslagsvísindamaður í hæsta gæðaflokki. Hann segir enga hamfarahlýnun standa yfir og ekki heldur er slík hlýnun fyrirsjáanleg.
Richard Lindzen er loftslagsvísindamaður í sama gæðaflokki og Happer. Lindzen segir enga hamfarahlýnun yfirvofandi.
Fyrir þá sem hafa gaman af norsku sjónarhorni þá skrifar háskólakennarinn Geir Hasnes sem byrjar á þessari setningu: ,,Loftslagsváin er athyglisvert fyrirbæri þar sem hún er hvorki studd vísindum né athugunum."
Gleðjumst yfir góðu sumri og vonumst eftir mildum vetri. En það er náttúran sem gefur og tekur líkt og hún hefur alltaf gert. Fyrir þúsund árum, þegar Íslendingar tóku kristni og byggðu Grænland, var um 1,5 gráðum hlýrra en í dag.
![]() |
Uppskera er lyginni líkust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)