Fimmtudagur, 30. september 2021
Stígamótalandsliðið
Stígamót stjórna vali á landsliði Íslands í knattspyrnu. Um það þarf ekki að hafa mörg orð. Nægir að vísa í meðferðina á Kolla og Aroni Einari.
Stígamót eru fjárplógssamtök sem stunda skipulega skoðanakúgun og raka til sín fé með hótunum. Stígamót svífast einskins til að koma ár sinni fyrir borð.
KSÍ lyppaðist niður og liggur enn í svaðinu eftir að hafa orðið skotmark Stígamóta.
Stígamótalandsliðið er skammarblettur á íþróttahreyfingunni.
![]() |
Stjórnarliðar KSÍ vísa ásökunum á bug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 30. september 2021
Fréttablaðið birtir skoðanir sem fréttir
Í gær skrifaði Aðalheiður Ámundadóttir leiðara í Fréttablaðið um meint kosningasvindl í NV-kjördæmi. Leiðarar eru skoðanir og túlkun. Fréttir eru annað, hlutlæg frásögn.
En þessu er öfugt farið á Fréttablaðinu. Þar á bæ eru fréttir skrifaðar til að styðja við skoðanir.
Í dag skrifar Aðalheiður forsíðufrétt Fréttablaðsins undir fyrirsögninni Óvissan er bæði lagaleg og pólitísk. Þar er leiðarinn frá í gær, um svindl í NV-kjördæmi, klæddur í búning fréttar.
Aðalheiður talar máli Pírata. Hún mætti sem slík í RÚV á kosninganótt. Píratar, eins og aðrir vinstriflokkar, töpuðu kosningunum.
Nú notar Aðalheiður aðstöðu sína á Fréttablaðinu til að skapa óvissu. Úr óvissu sprettur óreiða. Í óreiðu liggur von vinstrimanna að komast til valda.
Skoðanir Aðalheiðar eru forsíðuuppsláttur Fréttablaðsins. Það er verið að svindla á lesendum; vinstriskoðanir eru settar fram í búningi hlutlægra frétta.
Fréttablaðið fær ríkisfé til að standa undir útgáfunni. Í reynd er ríkið að niðurgreiða skoðanir. Hvað voru þeir að hugsa sem ákváðu að svo skyldi vera?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 30. september 2021
Dómarinn og þægilega innivinnan
Þorri vinstrimanna, sem sækist eftir kjöri á alþingi, er í leit að þægilegri innivinnu á góðu kaupi. Arnar Þór Jónsson héraðsdómari syndir á móti straumnum. Hann segir lausu traustu starfi og heldur í óvissuferð sem varaþingmaður. Dómarinn vill taka slaginn fyrir hugsjónir sjálfstæðrar þjóðar í fullvalda ríki.
Arnar Þór, eins og gefur að skilja, er hægrimaður.
![]() |
Arnar Þór hættir sem héraðsdómari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)