Ofbeldissveit sósíalista - KSÍ og Stígamót

,,Að koma á laggirnar stoðdeild skipaða sjálfstæðu lögreglu- og ákæruvaldi," segir á heimasíðu Sósíalistaflokks Íslands. Þetta er kallað ,,tilboð til kjósenda."

Í grein með tilboðinu er spurt Ef KSÍ hefði haft aðgang að Ofbeldiseftirlitinu?

Nærtækara er að spyrja: Ef Stígamót hefðu haft aðgang að Ofbeldissveitinni?

Jú, þá hefðu Guðni forseti KSÍ og Klara framkvæmdastjóri verið handjárnuð og sett í einangrun OSS, Ofbeldissveitar sósíalista, og látin játa á sig ásakanir Stígamóta.

Þeir kunna þetta sósíalistarnir. Forverar OSS eru NKVD, KGB og STASI.


mbl.is KSÍ ítrekar afsökunarbeiðni – vilja að ÍSÍ stofni nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

4-5 flokka vinstristjórn líklegust

Ef þjóðin kýs á laugardag samkvæmt skoðanakönnunum er líklegast að mynduð verði 4-5 flokka vinstristjórn, segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor.

Á bakvið tjöldin standa nú yfir hjaðningavíg vinstrimanna sem keppast við vinsældir hjá sömu kjósendahópum. Þau innanbúðarátök halda áfram í væntanlegri ríkisstjórn vinstrimanna. Þeir sem eru komnir til vits og ára muna hvernig kaupin gerðust á eyrinni í vinsældakapphlaupi Alþýðuflokks og Alþýðubandalags á síðustu öld.

Til að kaupa sér vinsældir verður opinbert vald og ríkissjóður miskunnarlaust notaður til að hygla sérvöldum hópum vinstrimanna sem sitja um opinber gæði eins og hrægammar. Í orði er talað um almannahagsmuni en á borði gilda sérhagsmunir vinstrihópa hver með sína útgáfu af tilverunni.

Almenningur á enn kost að forða sér frá vinstri stórslysi. Með því að kjósa ekki samkvæmt skoðanakönnunum og verja atkvæði sínu skynsamlega á laugardaginn kemur.


Bloggfærslur 22. september 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband