Mánudagur, 20. september 2021
Nú er það ljótt, SOS á Grétu Thunberg
Eldgosið úr iðrum jarðar undir Fagradalsfjalli hefur þegar dælt upp magni koltvísýrings, CO2, sem jafngildir losun allrar bílaumferðar á Íslandi í tvö ár.
Eins og það sé ekki nóg kemur ógrynni af vetnisflúorkolefnum (HF) upp úr jörðinni við Grindavík. Álíka magn af vetnisflúorkolefnum streymir upp úr gosstöðvunum og af koltvísýringi, eða um tvær milljónir tonna af hvoru það sem af er gosi.
Samkvæmt Umhverfisstofnun eru vetnisflúorkolefni með margfaldan ,,hlýnunarmátt" koltvísýrings. Það má margfalda hlýnunarmáttinn með 124 og allt upp í 14800, segir á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Stórfelld aukning gróðurhúsalofttegunda á sex mánuðum ætti að skipta einhverju máli um loftslag jarðar ef eitthvað væri að marka kenningar um alheimsvá vegna yfirvofandi hamfarahlýnunar. En það mun enginn senda neyðarkall á Grétu Thunberg og Sameinuðu þjóðirnar vegna Grindavíkurelda.
Í fyrsta lagi vegna þess að náttúran sjálf er hér að verki og ekki hægt að nota eldvirknina í pólitískum tilgangi. Í öðru lagi sökum þess að kenningin um samhengi gróðurhúsalofttegunda og hitastigs jarðar er ekki byggð á vísindum heldur hugmyndafræði.
![]() |
Hraunið nær nú yfir 4,8 ferkílómetra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 20. september 2021
Kaupauki - Kristrún og Gunnar Smári
Bæði Kristrún Frostadóttir og Gunnar Smári Egilsson, frambjóðendur Samfylkingar og sósíalista í Reykjavík, fengu tugmilljónir í kaupauka í störfum sínum hjá banka og auðhring. Kristrún hjá Kviku banka og Gunnar Smári hjá Baugi og dótturfélögum.
Gunnar Smári seldi einbýlishús sitt í Skerjafirði fyrir 125 milljónir enda bjó sósíalistinn í verðlaunahúsi.
Vonandi fór Kristrún betur með kaupaukann sinn en Gunnar Smári. Baugsmaðurinn segist í viðtali við félaga sinn í útgáfubransanum ekki eiga bót fyrir boruna á sér. Þingfarakaup upp á 1,5 m.kr. á mánuði myndi snarlega bjarga málunum.
Auðmenn eru auðvitað best til þess fallnir að setja okkur hinum lög og reglur um hvernig skuli fara með fjármuni okkar. Því hvað er fé án hirðis?
![]() |
Ekki erfitt að verja kaupaukagreiðslur Kristrúnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 20. september 2021
Við erum á leið í vinstri fátækt - forðum okkur
Fleiri er 200 smáfjárfestar, líklegast einstaklingar, seldu hlutafé sitt í morgun í kauphöllinni.
Fólk unnvörpum forðar peningunum sínum frá væntanlegri vinstristjórn eftir kosningar.
Enn eru fimm dagar til kosninga.
Ætli það verði ekki komin örtröð af fólki að endurnýja vegabréfin fyrir helgi?
![]() |
Framsóknarflokkur í lykilstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 20. september 2021
Viðreisn fellur á dollara-prófinu
Bandaríski dollarinn er eina alþjóðamyntin sem stendur undir nafni. Ef Íslendingar kæmust að þeirri niðurstöðu að krónan sé ekki á vetur setjandi og að við ættum að taka upp, eða tengjast, öðru myntsvæði þá er dollarinn eina raunhæfa leiðin.
Sama gildir um tungumálið. Ef Íslendingar kæmust að þeirri niðurstöðu að óhagkvæmt væri að halda úti sérstöku tungumáli þá væri eina vitið að taka upp ensku - en ekki dönsku, frönsku eða þýsku.
Dollara-prófið gengur út á að prófa hvort hagfræðileg rök séu að baki hugmyndum um að afnema íslensku krónuna, eða tengja hana annarri mynt, eða hvort annað hangi á spýtunni, t.d. innganga í ESB.
Viðreisn fellur á prófinu. Með því að boða tengingu krónu við evru er Viðreisn að læðupokast með íslenska hagsmuni inn í Evrópusambandið. Vidkun Quisling talaði um aría í Noregi þegar hann vildi ganga inn í Stór-Þýskaland. Viðreisn talar um evru á Íslandi til að innlima landið í Stór-Evrópu.
![]() |
Áætla að ráðstöfunartekjur heimilanna muni aukast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)