Fimmtudagur, 2. september 2021
Tilraun til mannorðsmorðs - hvaða menning er það?
,,Ég var farinn að efast um sjálfan mig og farinn að velta fyrir mér hvort ég væri búinn að tapa glórunni," skrifar Benedikt Rúnar Guðmundsson, þjálfari kvennalandsliðsins í körfubolta, eftir að tilraun var gerð til að hafa af honum æruna með mynd- og fréttafölsun.
Tvisvar þurfti Benedikt að bera af sér upplognar sakir. Hann kærði til lögreglu einstakling en svo kom til sögunnar fjölmiðill og hjó í sama knérunn.
Hvað heitir menningin sem býr til tilræðismenn að mannorði fólks?
![]() |
Benedikt: Hrikaleg upplifun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 2. september 2021
Gömul kona leiðir unga menn í gildru
Guðrún Jónsdóttir á Stígamótum vill að ungir knattspyrnustrákar tali opinberlega um nauðganir.
Þetta er gildra.
Ef fótboltastrákar taka til við að ræða nauðganir játa þeir aðild að því sem Guðrún kallar ,,nauðgunarmenningu".
En það er ekki til nein ,,nauðgunarmenning". Orðið er hugarfóstur Guðrúnar og öfgafemínista.
Sem betur fer eru þeir fáir sem nauðga. Þeir hafa ekki með sér félagsskap, svo vitað sé, og eru ekki afmarkaður minnihlutahópur sem tileinkar sér siði og háttu er mætti kallast menning.
Guðrún vill að saklausir piltar taki þátt í fantasíu eldri konu. Tilboðið er ekki sett fram af góðum hug heldur lúmsk tilraun að fá fram játningu ungra manna að þeir séu siðlausir og illa innrættir.
Gangi piltarnir í gildruna eru þeir orðnir meðlimir í fantasíuklúbbi Guðrúnar og öfgafemínista. Klúbburinn hefur öll einkenni sértrúarsafnaðar, með kreddur og fordóma. Guðrún segir að safnaðarmeðlimir ,,þurfa að játa það að þeir geti með engu móti fullyrt að allir séu þeir með hreinan skjöld." Menn eiga sem sagt að leita að syndinni, bæði hjá sjálfum sér og öðrum. Stígamót selja syndugum aflátsbréf á nokkrar milljónir stykkið.
Strákarnir okkar gerðu vel í því að afþakka tilboð Guðrúnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)