Sunnudagur, 19. september 2021
Femínismi og loftslagsvá - Lúther og Marx
Sameiginlegt femínisma og loftslagsglópum annars vegar og hins vegar Lúther er sú trú ađ menn séu í ,,eđli sínu illir og syndugir," og munu á efsta degi hljóta miskunnarlausan dóm almćttisins.
Lúther á hinn bóginn gerđi sér glögga grein fyrir ađ sigurverk heimsins vćri af guđi skapađ. Femínistar og glópar trúa ađ heimurinn sé manngerđur ađ stćrstum hluta.
Ţađ er á valdi mannsins, en ekki almćttisins, ađ skapa paradís á jörđ međ réttum lofthita, engum nauđgunum; ţar sem allir eru í ţćgilegri innivinnu á góđu kaupi. Segja vinstrimenn.
Spásögn vinstrimanna kemur frá öđrum Ţjóđverja, Karli Marx.
En vegna ţess ađ sannfćringin um illsku mannsins, erfđasyndina, helst í hendur viđ trú á manngerđa paradís nota vinstrimenn alltaf tćkifćriđ, ţegar ţeir komast til valda, ađ limlesta, drepa og fangelsa óvini sína.
Paradís femínista, glópa og annarra vinstrimanna er gúlagiđ.
![]() |
Talibanabragur á mörgu hjá Lúther |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 19. september 2021
ESB-sinnar á Íslandi í stríđi viđ Bandaríkin og Bretland
Samfylkingin og Viđreisn telja Íslendinga eiga meiri samleiđ međ Evrópusambandinu en Bendaríkjunum og Bretlandi. Á milli ESB og enskumćlandi ţjóđa ríkir stríđsástand, segir Telegraph.
Macron Frakklandsforseti talar um hníf í bakiđ og ađ Biden-stjórin í Washington fylgi Trump-stefnu í utanríkismálum.
Hvađ er á seyđi?
Jú, Bandaríkin, Bretland og Ástralía opinberuđu í vikunni samning sín á milli um uppbyggingu kafbátaflota til ađ verjast ágengni Kína. Samtímis riftu Ástralir samningi viđ Frakka sem ásamt Ţjóđverjum ráđa öllu í ESB.
ESB lítur á sig sem stórveldi á pari viđ Bandaríkin og Kína. Niđurlćgingin í Ástralíu er til marks um ađ enskumćlandi ţjóđir telji ESB standa á brauđfótum.
Afturköllun Frakka á sendiherrum í Washington og Canberra er stórpólitísk yfirlýsing um ađ kalt stríđ sé á milli Frakka/ESB annars vegar og hins vegar engilsaxa. Međ ţví ađ kalla ekki sendiherrann heim frá London eru Frakkar ađ segja Breta hjálendu Bandaríkjanna.
ESB-sinnar á Íslandi, Samfylking og Viđreisn, eru útsendarar Brusselvaldsins. Atkvćđi greidd ţessum flokkum eru yfirlýsing um ađ Íslendingar ćttu ađ slíta sig frá vinaţjóđum okkar, Bandaríkjamönnum og Bretum, og taka upp ţykkjuna fyrir hönd Evrópusambandsins.
Á međan pólitík á Íslandi snýst um blóđgjöf homma, fornöfn, dygđaskreytni á Hellisheiđi og Thunberg-ráđuneyti gerast stórpólitískir atburđir á heimsvísu sem fara ofan garđ og neđan.
En, auđvitađ, ţegar heilir níu stjórnmálaflokkar á Fróni ćtla ađ breyta heiminum er ekki viđ ţví ađ búast ađ stóru málin ţvćlist fyrir ţeim.
![]() |
Frakkar reiđir og kalla sendiherra sína heim |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Breytt s.d. kl. 09:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)