Miðvikudagur, 15. september 2021
Karlmaður svarar femínista
Nauðgunarvísitalan á Íslandi er 0,09 prósent. Vísitalan er hlutfallið milli meðalfjölda karlmanna á Íslandi 2001-2019 og árlegra nauðgana á sama tímabili, skv. afbrotaskýrslu lögreglu. Stundum nauðga konur og sumir karlar nauðga oftar en einu sinni. Það gæti leitt til lækkunar vísitölu en ekki hækkunar.
Joshua Ikechukwu Mogbolu var þannig dæmdur í vor fyrir tvær nauðganir og grunaður um þriðju. Þessi sending frá útlöndum lækkar nauðgunarvísitöluna, sem reiknar eina nauðgun pr. nauðgara. Þá er þess að geta að rannsókn á nauðgunum er stundum felld niður og, fari meint afbrot fyrir dóm, er stundum sýknað. Allt horfir þetta til lækkunar á vísitölunni.
Einhverjir ímynda sér að nauðganir séu fleiri en nemur að meðaltali 137 á ári. En hagtölur ná ekki til ímyndunar, ekki frekar en tölfræði almennt. Saumaklúbbur femínista getur fantaserað um nauðganir en veruleikinn miðar við rauntölur.
Meðalkarlinn á Íslandi er sem sagt 0,09 prósent nauðgari og þar af leiðandi 99,91 prósent ekki-nauðgari.
Femínistar eru æ áleitnari á karla og karlamenningu. Veikara kyninu verður svarafátt þegar kvennaskarinn kyrjar hátt og snjallt á samfélags- og fjölmiðlum. Við hæfi er að rétta í hendur karla staðlað svar.
Hvort heldur áleitni femínistinn er miðaldra sveltur eða ungur ófullnægður er mátulegt svar karlmannsins eftirfarandi. Ég er 99,91 prósent ekki-nauðgari en núll komma núll níu prósent nauðgari. Hvorn partinn má bjóða þér?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 15. september 2021
Múslímavæðing, nei takk
Ríkisstjórnin, með Framsóknarflokkinn í fararbroddi, hyggst stórfjölga múslímum hér á landi.
Það er misráðið. Ekki vegna þess að múslímar séu vont fólk, þeir eru sem slíkir hvorki betri né verri en aðrir. Múslímatrú er vandamálið. Hún aðlagast ekki vestrænni menningu. Lifandi í orðræðu múslíma eru hugtökin ,,trúaður" og ,,vantrúaður". Þetta er miðaldagóss sem vesturlönd afþökkuðu með upplýsingunni og frönsku byltingunni.
Vestræn menning gerir ráð fyrir jafnrétti kynjanna og aðskilnaði trúar og ríkisvalds. Múslímar fallast á hvorugt. Samkvæmt þeirra trú er konan undirsett karlmanninum. Samkvæmt múslímum er trúin ekki einkamál hvers og eins heldur skal trúin móta samfélagið.
Múslímar koma til Íslands sem safnaðarfólk en ekki einstaklingar. Óhugsandi er að í viðtali við Pólverja eða Litháa kæmi fram sjónarmið eins og ,,ef við vinnum í samvinnu við yfirvöld og hjálpum aðfluttum að aðlagast samfélaginu þá munum við ná árangri." En þetta segir talsmaður múslíma blákalt. Múslímar eru börn spámannsins, ekki frjálsir einstaklingar.
Múslímar eru trúarsöfnuður sem á ekki heima á Íslandi. Þeir sem annað halda eru annað tveggja grunnhyggnir eða illviljaðir.
![]() |
Múslimar koma til Íslands til þess að búa við frið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)