Þriðjudagur, 14. september 2021
RÚV í fýlu út í Guðna Th. forseta
Stígamót og hagsmunahópurinn á Efstaleiti voru samstíga í herferðinni gegn íþróttahreyfingunni á Íslandi. RÚV bjó til nauðgunarmenningu á færibandi handa rétttrúuðum. En þegar Guðni Th. forseti hoppaði af fordæmingarvagni Efstumóta móðguðust RÚV-arar og reyna nú að velta forsetanum upp úr kynferðisbrotamáli á Bessastöðum.
Guðni Th. baðst afsökunar í gær að hafa tekið undir áróður RÚV-stíga um að strákarnir okkar væru upp til hópa nauðgarar. Afsökun Guðna Th. birtist alþjóð um hádegisbil í gær.
Það tók RÚV meira en sólarhring að finna Stígamótaflöt á afsökunarbeiðni forsetans. Síðdegis í dag er búið að sjóða saman atlögu að forsetanum. Inngangur fréttarinnar er svona:
Forseti Íslands, Guðni Th Jóhannesson, baðst í gær afsökunar á því að hafa notað orðið fáviti" i umræðu um viðkæm [sic] og erfið mál. Starfsmaður forsetaembættisins sem sekur var um kynferðislega áreitni í starfsmannaferð í París fyrir tveimur árum hefur látið af störfum.
Regla í fréttaskrifum er að inngangurinn segi fréttina. Þar eiga aðalatriði að koma fram og sjónhornið. Í frétt RÚV er látið eins og forsetinn sé að biðjast afsökunar á innanhúsmáli Bessastaða.
En yfirlýsing forsetans var óvart að hann sá eftir því að hafa tekið undir ásakanir Stígamóta og RÚV að strákarnir okkar væru gegnsósa nauðgunarmenningu.
Á Efstaleiti var tekið hart á Guðna Th. Forsetanum er velt upp úr allt öðru máli en afsökunarbeiðnin fjallaði um. Þeim er lagið á leiti að vera skítlegir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 14. september 2021
Stórsigur ESB-andstæðinga í Noregi
Miðflokkurinn i Noregi er sigurvegari þingkosninganna. Flokkurinn, líkt og íslenski Miðflokkurinn, er harður andstæðingur Evrópusambandsins og vill EES-samstarfið feigt.
Sósíalíski vinstriflokkurinn bætir við sig og er einnig á móti ESB og vill segja upp EES-samstarfinu.
Rauði flokkurinn gerir þriðja besta mótið í kosningunum. Þar er allt á sömu bókina lært; gegn ESB og út með EES.
Gulli utanríkis, helsti varðmaður EES á Íslandi, hlýtur að vera í taugaáfalli.
![]() |
Útlit fyrir vinstri stjórn í Noregi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)