Mánudagur, 13. september 2021
Guðni forseti hreifst með Stígamótum - biðst afsökunar
Stígamót og öfgafemínistar notuðu Kolbeinsmálið til að gera alla knattspyrnumenn grunaða kynferðisbrotamenn.
Guðrún á Stígamótum orðaði óhugnaðinn með þessum orðum: íslensku landsliðsmennirnir ,,þurfa að játa það að þeir geti með engu móti fullyrt að allir séu þeir með hreinan skjöld."
Menn áttu að sanna sig saklausa af ásökunum Stígamóta að vera kynferðisglæpamenn.
Guðni Th. forseti tók undir Stígamótaviðbjóðinn með því að viðhafa orðið ,,fáviti" þegar hann mætti á landsleik.
Nú sér forsetinn að sér og biðst afsökunar að hafa lagst á árarnar með öfgahreyfingu Stígamóta.
Það er vel.
![]() |
Guðni biðst afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 13. september 2021
Glittir í gamla Ísland
Á síðustu öld var til Alþýðuflokkur sem hataðist við Framsóknarflokkinn, landsbyggðina, bændur og sjávarútveginn. Svona um það bil í þessari röð. Í dag er enginn Alþýðuflokkur en Viðreisn er komin í hlutverkið.
Yngsta skoðanakönnunin fyrir þingkosningar eftir tvær vikur tæpar sýnir vaxandi fylgi Framsóknarflokksins annars vegar og hins vegar Viðreisnar.
Það glittir í gamla Ísland.
Gamlir karlar kætast.
![]() |
Fylgi framboða komið á hreyfingu inn á miðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 13. september 2021
Landslið Stígamóta
Hvorki leikmenn né áhorfendur nenna.
Þannig er það nú bara.
![]() |
Leikmenn gætu hætt vegna afskipta stjórnar KSÍ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)