Miðvikudagur, 1. september 2021
Biden er uppgjöfin, Trump var sigurinn - 1. sept. 1939 og 2021
Endalok frjálslyndrar heimsvaldastefnu voru tilkynnt alþjóð 1. september 2021. Yfirlýsing Joe Biden Bandaríkjaforseta um að land hinna frjálsu og huguðu sé ekki lengur alheimslögregla markar tímamót.
Biden fylgir stefnumörkun Trump um að aðeins lífsnauðsynlegir hagsmunir Bandaríkjanna réttlættu stríðsátök. Munurinn er sá að Trump kynnti stefnu sína af styrk og festu en Biden með skottið á milli fótanna. Trump sýndi Bandaríkin sem öflugt herveldi. Biden stýrir niðurlægðu þjóðríki. Forsetatíð Biden er komin í pappírstætarann þótt aðeins séu liðnir 8 mánuðir frá því hún hófst.
Tímasetning uppgjafarinnar er söguleg. 1. september 1939 er upphaf seinna stríðs. Þegar stríðinu lauk tóku Bandaríkin sér lögregluvald heimsbyggðarinnar.
Undir merkjum frjálslyndrar alþjóðahyggju, sem í raun var vestræn heimsvaldastefna, var efnt til stríðsrekstur í Úkraínu, Sýrlandi, Líbýu, Írak og Afganistan á þessari öld.
Heimurinn er annar eftir 1. september 2021. Breytingarnar verða ekki jafn dramatískar og eftir 1. september fyrir 82 árum. En þær verða róttækar.
![]() |
Viturleg ákvörðun og sú besta fyrir Bandaríkin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 1. september 2021
ESB stjórnar Íslandi í gegnum EES
Evrópusambandið stjórnar því hvort Bandaríkjamenn fái leyfi til að heimsækja Ísland. Ástæðan er aðild Íslands að EES-samningnum.
Evrópusambandið krefst þess að íslensk lög falli úr gildi þegar þau stangast á við reglur ESB, eins og rekið er á Fullveldi.is Ástæðan er EES-samningurinn.
Niðurstaða: Ísland þarf að segja upp EES-samningnum.
![]() |
Ekki velkomnir til Íslands án brýns erindis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)