Laugardagur, 28. ágúst 2021
Katrín og Logi - eldgos og bílaumferð
Á 5 mánuðum hefur eldgosið í Fagradal losað meiri koltvísýring, CO2, í andrúmsloftið en allar vegasamgöngur á Íslandi losa í eitt og hálft ár. Ef aðrar gróðurhúsalofttegundir eru teknar með í reikninginn losar gosið við Grindavík álíka og bílaumferð í 3-4 ár.
Gosið er fimm mánaða, þykir lítið og er enn að.
Katrín í Vinstri grænum og Logi í Samfylkingu telja koltvísýring í andrúmslofti, og aðrar gróðurhúsalofttegundir, vera spurningu um líf og dauða.
Hvorki Katrín né Logi ræddu framlag jarðeldanna en varð tíðrætt um að fólk ætti að skattleggja ef það notaði bíla. Útblástur bíla er aftur aukaatriði í loftslagsframlagi Íslands.
![]() |
Beint: Ræða Katrínar á landsþingi VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 28. ágúst 2021
Samfélagsofbeldið gegn drengjum
Skipulagt ofbeldi er stundað gagnvart drengjum og ungum karlmönnum sem rænir þá lífsgæðum. Ofbeldið hefst þegar í grunnskóla.
Helga Hannesdóttir geðlæknir skrifar í Læknablaðið:
Í meira en áratug hafa konur verið um 70% af þeim sem ljúka háskólaprófi á Íslandi. Á þetta rætur að rekja til vanda í grunnskólanámi drengja eða eru þetta samfélagsleg áhrif? Brottfall drengja er um 50% meira en stúlkna í framhaldsskólum, sem eykur líkur á að háskólar verði kvenlægar stofnanir.
Menntun er lífsgæði sem æ stærri hluti drengja fer á mis við. Karlar verða hægt en örugglega ólæsir á menninguna. Þeim er vísað á jaðar siðmenningarinnar, fá verra atlæti og sagt að skammast sín fyrir það sem þeir eru.
Hvað gerist þegar ungum karlmönnum er sagt að þeir séu óalandi og óferjandi frummenn? Nú, vitanlega, þeir fara að haga sér sem slíkir.
![]() |
Hefur áhyggjur af geðheilsu nemenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)