Sunnudagur, 22. ágúst 2021
Tölfræði gróðurhúsakenninga hrynur
Í meira en 20 ár notar loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna, IPCC, gallaða tölfræðigreiningu á rannsóknir um áhrif gróðurhúsalofttegunda á hlýnun jarðar.
Tölfræðigreiningin, kölluð AT99, eftir höfundum og ártali, er notuð til að sannprófa áhrif gróðurhúsaloftegunda á hitastig jarðar.
Ross McKitrick sýnir fram á að AT99-greiningin er gölluð tölfræði. McKitrick birtir niðurstöðu sína í ritrýndu vísindatímariti en hefur fengið umfjöllun víðar, sjá hér og hér.
Gróðurhúsakenningin og framleiðsla mannsins á koltvísýringi, CO2, er kjarni loftslagsumræðunnar. Þegar tölfræðin að baki reynist gölluð í grundvallaratriðum er kenningin ósönnuð - henni verður að hafna.
En, auðvitað, við sem höfum nennt að fylgjast með umræðunni vitum ósköp vel að hún snýst ekki um að skilja náttúruna með vísindum heldur nota vísindin í pólitískum tilgangi. Ronan Connolly tekur saman ferlið hvernig pólitík tók lofslagsvísindi í gíslingu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 22. ágúst 2021
Blair segir Biden imba - fótspor Trump
Ekki er ofsagt að gagnrýni Tony Blair fyrrum forsætisráðherra Breta á Joe Biden forseta Bandaríkjanna sé persónuleg. Í endursögn Telegraph, sem að jafnaði er hófstillt útgáfa, segir Blair Biden imba.
Imbar eru samkvæmt skilgreiningu óhæfir til mannaforráða. Enda er flýtur forræði heimsmála í stórfljótum frá Bandaríkjunum til Rússlands og Kína. Bretar leita til Pútín og Kínverja að hafa hemil á talibönum. Bandaríkin eru úr leik með imba sem forseta.
Allt er með ólíkindum í þróun mála eftir fall Afganistan. Biden forseti fylgdi í fótspor Trump sem með breiðum stuðningi bandarísku þjóðarinnar, en ekki elítunnar í Washington, ákvað að hætta hernaðarævintýrum í útlöndum.
Biden fékk kjör sem Ekki-Trump en hélt stefnu forvera síns til streitu í utanríkismálum. En á meðan utanríkismál voru styrkur Trump, hann tapaði kosningunum 2020 á kófinu og kynþáttaóeirðum, reynist utanríkisstefna Trump banabiti Biden.
Hvernig má þetta vera?
Ein skýring er að af Biden var ætlast að vera Ekki-Trump og hefja ágenga utanríkisstefnu til vegs á ný í anda eftirmálanna frá 11. september 2001. En það var aldrei í kortunum. Í útþenslu sem byggist á hernaðarmætti eru Bandaríkin búin á því. Og það var ekki Trump sem bjó til þá stöðu heldur veruleikinn sjálfur. Hvorki hafa Bandaríkin sjálf lyst á hlutverkinu alheimslögga né heimsbyggðin almennt. Útþenslan frá 2001 er klúður ofan á klúður: Írak, Líbýa, Sýrland, Úkraína og nú Afganistan.
Trump sýndi undanhald Bandaríkjanna sem styrkleika. Gerum Ameríku máttuga og öll sú ræða. Biden á hinn bóginn er miðjusoðinn mildingur, ekki með aðra stefnu eða ásýnd en að vera andhverfa Trump. Andstæðan við stórt er lítið.
Maður finnur til með Biden. Hann varð forseti vegna mótsagnar.
![]() |
Blair fordæmir brotthvarf hersins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)