Landbúnaður og hrun siðmenningar

Hrun siðmenningar er nærtæk hugsun á tíma kófs og Grétu. Minnir á tvennt.

a) Alþjóðleg siðmenning getur hrunið. Gerði það fyrst, svo sögur fari af, á 12. öld fyrir Krist. Sjá skemmtilegan fyrirlestur Eric Cline. Gerist aftur,  spurningin er hvenær.

b) Ísland var numið til landbúnaðar. Við vorum öll bændur og búalið fram til um 1900.

Ályktun: landbúnaður bjargar kannski ekki siðmenningu en án hans er engin siðmenning. Höldum sveitum í byggð og hlúum að íslenskum landbúnaði.


mbl.is Einna best að búa á Íslandi ef siðmenning hrynur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin lokuð, Evrópa mismunar - Trump stefnan alþjóðavæðist

Bretar vonuðust til að Bandaríkin tækju á móti breskum ferðamönnum eftir að Bretar opnuðu landið Bandaríkjamönnum. En nei, Bandaríkin eru lokuð, Bretum sem öðrum. Evrópa fer þá leið að mismuna fólki eftir því hvort það er bólusett eða ekki.

Fyrir farsótt voru landamæri fremur í orði en borði austan hafs og vestan. Trump vildi reisa girðingu við landamærin að Mexíkó og bannaði komu múslíma til Bandaríkjanna. Hann var atyrtur beggja vegna Atlantsála fyrir að myrða frelsi og frjálsa för.

Nokkrum mánuðum eftir að Trump lætur af embætti er stefnu hans hrint í framkvæmd undir merkjum sóttvarna. Frelsi og frjáls för eru minning um veröld sem var.


mbl.is Aðra sögu að segja af Delta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. júlí 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband