Mánudagur, 19. júlí 2021
Kauphöllin rauð en þjóðin sæl
Flugfélögin Play og Icelandair féllu um 4,35% og 3,9% í verði eftir að ríkisstjórnin tilkynnti nýjar sóttvarnir á landamærunum. Kauphöllin var nær öll rauð en ferðaþjónustan lækkaði mest.
Leikjaröðin í sóttvörnum er þvinguð. Ef hætta er á að ný afbrigði Kínaveirunnar valdi usla þarf að grípa til aðgerða. Rökrétt er að aðgerðir hefjast við landamærin. Ef þær duga ekki þarf meira til.
Það er mun meira þanþolið hjá almenningi að láta yfir sig ganga takmarkanir yfir sumarið en búa við skólalokanir og stopp á menningu og mannfagnað í haust.
![]() |
Aðgerðir innanlands ekki útilokaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 19. júlí 2021
Heilbrigðir og sjúkir, Gates og Soros
Auðjöfrarnir Bill Gates og George Soros kaupa ásamt öðrum breskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á hraðprófum fyrir sjúkdóma eins og COVID-19. Fréttin er úr Telegraph sem þykir þokkalega áreiðanleg fréttaveita.
Menn eins og Gates og Soros eru þekktir fyrir að horfa til framtíðar í fjárfestingum sínum. Kaupin á breska fyrirtækinu má hafa til marks um að félagarnir meti stöðu mála þannig að eftirspurn verði til frambúðar á hraðprófi vegna smitsjúkdóma eins og COVID-19.
Nú þegar eru gefnar út í Bandaríkjunum og Evrópu ýmsar útgáfur af bólusetningarvottorðum, n.k. heilsufarsvegabréf. Handhafar slíkra vegabréfa eru frjálsari ferða sinna innanlands og utan en þeir sem eru án vegabréfanna.
Almenningur á vesturlöndum í það stóra og heila virðist fylgjandi stórauknu eftirliti hins opinbera á heilsufari og sættir sig jafnframt við margvíslegar hömlur á daglegu lífi sbr. skyldu til að bera andlitsgrímu, skerðing á atvinnu- og ferðafrelsi o.s. frv.
Farsóttir á borð við þá sem Kínaveiran veldur ganga að jafnaði yfir á tveim til fjórum árum. Teikn eru ótvíræð um að heimurinn breytist varanlega með þessari farsótt og fari ekki í sama farveg og fyrir kóf. Gates og Soros eru framsýnir fjárfestar.
![]() |
Einkennin ýmist væg eða engin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)