Fékk ekki bréf frá Samherja - en málssókn frá RÚV

Tifallandi athugasemdir fengu ekki bréf frá Samherja þegar norðlenska útgerðin var gagnrýnd fyrir að atast í Seðlabanka Íslands eftir sýknu í dómsmáli er leiddi af rannsókn bankans á gjaldeyrisviðskiptum eftir hrun, sjá hér og hér.

Þegar á daginn kom að rannsókn Seðlabankans var reist á blekkingum RÚV sneru Tilfallandi athugasemdir við blaðinu og gagnrýndu RÚV fyrir að misbeita fjölmiðlavaldi til að klekkja á útgerðinni. Tilfallandi athugasemdir eru þannig gerðar að þær taka mið að veruleikanum en ekki ímyndun og fordómum.

RÚV er til muna illskeyttari en Samherji þegar kemur að viðbrögðum við gagnrýni. Höfundi Tilfallandi athugasemda var stefnt þegar falsfréttir RÚV í Evrópuumræðunni voru afhjúpaðar. RÚV tapaði málinu fyrir héraðsdómi en lét ekki þar við sitja. Hagsmunahópurinn á Efstaleiti reyndi að fara með málið fyrir hæstarétt en varð ekki kápan úr því klæðinu.

Annars mætti halda að gúrkutíð sé runnin upp hjá fjölmiðlum þegar bréfaskriftir Samherja verða fréttir. Slíkar fréttir draga upp þá mynd að stjórnsýslan sé orðin svo ofurviðkvæm - woke - að ekki megi senda bréf án þess að fólk fái taugaáfall.


mbl.is Seðlabankastjóri fékk bréf frá Samherja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villidýr og vísindi

Indverska afbrigði Kínaveirunnar er lýst sem ,,algjöru villidýri" í meðfylgjandi frétt. Myndræn framsetning á veiru sem er ósýnileg mannsauganu eykur skelfingaráhrifin sem þjónar þeim tilgangi að fá fólk til að hlýða boðum og bönnum til að verjast villidýrinu.

Farsóttarvarnir eru sagðar byggðar á vísindum. Það segir aðeins hálfa söguna. Snemma í farsóttinni voru þau ,,vísindi" búin til að veiran væri náttúruleg, hefði orðið til á kjötmarkaði í Wuhan í Kína. 

En vaxandi líkur eru á að veiran sé manngerð, hafi orðið til í rannsóknastofu í Wuhan. Judith Curry tekur saman frásögnina um falsvísindin að baki meintri þekkingu um uppruna Kínaveirunnar.

Hvort heldur náttúruleg eða manngerð er Kínaveiran staðreynd sem þarf að takast á við. En hún er ekki villidýr. Ekki frekar en að vísindin séu óbrigðul.


mbl.is Kappa lýst sem „algjöru villidýri“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. júní 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband