Eimskip játar - hvað með Samskip?

Eimskip játar ,,al­var­leg brot á sam­keppn­is­lög­um vegna víðtæks sam­ráðs við keppi­naut­inn Sam­skip, sem fólst einna helst í sam­ráði um breyt­ing­ar á sigl­inga­kerf­um, tak­mörk­un á flutn­ings­getu, sam­ráði um álagn­ingu gjalda og af­slátt­ar­kjara, sam­ráði um sjó­flutn­inga beggja vegna Atlants­hafs­ins og loks sam­ráði um land­flutn­ingaþjón­ustu á Íslandi."

Hvað er að frétta af hlut Samskipa?


mbl.is Eimskip viðurkennir alvarleg brot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Katrín forsætis: hvar er Umhverfisstofnun?

Forsætisráðherra splæsti á samlíkingu farsóttar og loftslagsváar í 17, júní-ræðu sinni. Katrín sagði:

Við þurfum að halda áfram að takast á við loftslagsvána rétt eins og við tókumst á við faraldurinn; sameiginlega, á grundvelli rannsókna og gagna og með sem bestum upplýsingum til allra þannig að við getum öll lagt okkar af mörkum til að ná árangri í þeirri baráttu.

Í farsótt var upplýsingum miðlað daglega og víðtæk umræða var um talnagögn, smitvarnir og bóluefni. Þegar kemur að loftslagsvá er aftur fátt að frétta.

Eldgosið í Fagradal er þriggja mánaða. Leikmenn hafa reiknað út að koltvísýringurinn, CO2, úr gosinu sé orðinn jafnmikill og árleg losun allrar bílaumferðar á landinu. Þá er eftir að reikna losun vatnsgufu sem er áhrifameiri gróðurhúsalofttegund en CO2. Um 60-70 prósent útblásturs jarðelda er vatnsgufa.

Umhverfisstofnun heldur bókhald um losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum. En þaðan heyrist ekki múkk um áhrif eldvirkninnar á bókhaldið.

Er það kannski vegna þess að í raun er allt bókhaldið byggt á pólitík en ekki vísindum?


mbl.is Hvenær erum við Íslendingar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. júní 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband